Brekkur
Skautasvellsbrekkan, eitt af markmiðunum mínum fyrir sumarið tengist henni. |
Ég var búinn að ætla að hjóla inni í gær en eins og stundum áður síðustu vikur þá var veðrið ekki eins slæmt og ég hafði búist við. Ég ákvað að taka rúll um bæinn og spýtast upp einhverjar random brekkur og láta lappirnar aðeins finna fyrir því. Ég hef ekki verið nægilega duglegur að taka alvöru spretti og ég elska svona "æfingar".
Ég byrjaði að fara tvisvar bröttu brekkunni á leiðinni upp í Súlur (Malbikunarstöð) en lét það svo gott heita þar sem mér fannst ég eitthvað hálf krumpaðu. Þaðan fór ég svo niður í skautasvellsbrekku og tók eina ferð upp. Ég byrjaði frekar rólega þar sem ég ætlaði s.s. ekkert að reyna að bæta tímann minn en endaði svo á því að taka vel á því. Kannski aðeins of vel.
Ég tók 14 sekúndur af besta tímanum mínum þarna upp en ég held að hafi í bjartsýni sett mér markmið um bætingu upp á 30 sekúndur í sumar, sem myndi skila mér KOM (King Of the Mountain). Ég reyndar held að það sé alveg raunhæft ef ég tek atrennu að þessu. Kemur í ljós. Tíminn minn upp í gær er sá 21. besti en inni í því eru rafhjólarar sem hafa ekki verið flaggaðir.
En allavega, þaðan hjólaði ég svo niður í Innbæ og þegar þar var komið sögu var ég ennþá lafmóður þó púlsinn væri orðinn nokkuð eðlilegur. Ég náði mér eiginlega ekkert á strik eftir þetta og fór að velta því fyrir mér hvort þetta hefði kannski ekkert verið mjög sniðugt svona í miðri hvíldarviku. En ég hélt aðeins áfram og tók Spítalaveginn, Oddeyrargötuna og einhverjar fleiri brekkur sem mér finnst skemmtilegar.
Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að það væri fínt að taka auðveldar æfingar með stuttum sprettum í hvíldarviku en æfingin í heild sinni var eiginlega út um allt kortið (öll zone) og ég er ekki viss um að hún hafi gert mikið gagn. Að gamni ákvað ég að spyrja Chat GBT um hverni spjallvélmennið myndi setja upp hvíldarviku:
As an AI language model, I don't have access to your specific personal information, such as your current fitness level, cycling experience, and training goals. Therefore, it's essential to consult a certified cycling coach or a sports physician before starting any new training plan.
However, I can provide some general guidelines for intensity distribution for a 5:45 hour rest week in a cycling plan:
- Endurance rides: 2-3 rides of 2-3 hours at a conversational pace, which means you can talk in full sentences without getting out of breath. These rides should make up the majority of your weekly training volume, at around 60-70% of your maximum heart rate (MHR).
- Tempo rides: 1-2 rides of 30-60 minutes at a steady, moderate pace, around 80-85% of your MHR. These rides help improve your lactate threshold and increase your endurance.
- Recovery rides: 1-2 short rides of 30-60 minutes at an easy pace, around 50-60% of your MHR. These rides help your body recover from harder training sessions and keep your legs fresh for your next workout.
Again, keep in mind that this is just a general guideline, and your personal training plan may vary depending on your specific goals, fitness level, and cycling experience.
Ég ætla ekki alveg að leggja mat á þetta var hérna núna en held að ég haldi mig við eitthvað frekar rólegt út vikuna. Annars er ég oft að leika mér að spyrja Chat GBT um eitthvað í tengslum við æfingar og það er alveg makalaust hvað maður fær oft góð svör.
Ummæli