Blómabras og tiltekt
Monsteran komin í mold. |
Ég var búinn að lofa mér því fyrir Páska að taka allavega einn dag frá í að sortera dót, setja föt í rauðakrossinn og helst henda slatta af dóti. Ég átti einnig eftir að umpotta nokkrum blómum og koma monsteru afleggjaranum mínum sem Steinar gaf mér í mold.
Harpa var að fara að vinna seinnipartinn og ég ákvað því að þetta væri hentugur tími. Núna er klukkan að verða átta að kvöldi og ég er nánast búinn að vera að í allan dag. Hluta af tímanum fannst mér ég samt bara vera að snúast í hringi og ekkert vita hvað ég var að gera.
Það er með ólíkindum hvað maður sankar að sér miklu drasli. Fötum og dóti sem maður notar nánast aldrei en á einhvern óskiljanlegan hátt tímir samt ekki losa sig við. Maður er tilfinningalega tengdur allskyns dóti og fötum. Fann t.d. lopapeysum sem ég hélt ég væri búinn að henda fyrir lifandi löngu en endaði á að setja hana aftur upp í skáp.
Áður en börnin fóru til mömmu sinnar hjálpuðu þau mér við að taka afleggjara sem eru að spíra. Frá vinstri; gyðingurinn gangandi, kólus og svo mánagull. |
Árangurinn af vinnu dagsins er kannski ekki jafn afgerandi og ég hefði óskað mér (sá fyrir mér tóma íbuð), en ég er þó búinn að koma örlítið betra skikki á dótið, skipuleggja í fataskápunum, raða í kassa og sortera eitthvað dót. Get gengið að hlutunum sem vísum. Ég fór með 4 poka í rauðakrossinn og ég náði því að losa eitthvað pláss í fataskápunum. Og svo tók blómastússið drjúgan tíma.
En það er samt mikið verk óunnið. Listadótið er út um alla stofu og geymslan hjá mér er orðin full. Þar er einmitt allt fullt af ómissandi drasli sem ég hef ekki notað í mörg ár. Það verður að bíða betri tíma.
Ummæli