Vetrarhlaup búið.

Team Fljótfær í síðasta Vetrarhlaupi UFA 2023

Þegar þetta er skrifað ligg ég uppi í rúmi eftir helvíti fínt hlaup í kvöld. Ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast og að sjálfsögðu keyrði ég miklu harðar á þetta en ég hafði ætlað mér. Ég hljóp fyrstu 2 kílómetrana með fremstu hlaupurum og velti því fyrir mér hvern andskotann ég væri eiginlega að spá? Ég fór að óttast að springa, var lafmóður og púlsinn konstant yfir 160, sem er mjög hátt fyrir mig. Og þegar þarna var komið var mikil hækkun eftir.

Næstu kílómetra missti ég einhverja fram úr mér, ekki svo marga þó, en er bara ánægður með hvað ég hélt fínum dampi miðað við að hafa verið við rauðu línuna frá upphafi. Lengi vel var ég með 2 gaura í sigtinu sem ég ætlaði að ná aftur en að lokum treysti ég mér ekki í að gefa meira í þar sem ég var á limminu. Síðasta kílómeterinn var ég svo með einn á hælunum en náði að bíta hann af mér í síðustu brekkunum og var ánægður með það. Ég hlakka til að sjá á morgun hvar ég endaði.


Brautin, hækkunin og helstu tölur.

Hlaupið var 5,7 km, nokkur hækkun lengst af og ég var 25:41s að klára þetta. Meðalpúls 164 og pace-ið 04:29 mín/km. Þetta er ekki afleitt miðað við að ég hef ekki hlaupið í 6 vikur. Þegar búið er að leiðrétta fyrir hækkun (GAP) þá var pace-ið 4:23 min/km sem ætti að skila manni 10 km. tíma upp á 42 mínútur. Ég hugsa að ég færi nálægt því að púlla það á flatri braut og met það sem svo að markmiðið um sub 40 mín í 10 km sé ekki svo fáránlegt. 

Uppfært daginn eftir:
Ég er furðu góður í fótunum þó ég finni vel fyrir því að ég hafi verið að taka á því í gær. Með netta strengi og aðeins sár. Ég er þó ennþá miklu betri en ég þorði að vona og hlakka bara til að fara út að hlaupa í Reykjavík um helgina.

Úrslitin voru að detta í hús og ég var áttundi af 12 í mínum aldursflokki sem er lélegra en ég bjóst við. Mér til afsökunar þá var mjög stutt á milli mín og næstu 4-5 keppenda. Í október var ég 8/21 hjá körlum í mínum aldursflokki. Í heildina var ég númer 21 af 55 í gær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap