Síðasta vetrarhlaupið
Myndin af okkur í liðinu Fljótfær í október. |
Í dag er síðasta vetrarhlaup UFA og núna ætla ég ekki að bregðast liðsfélögunum. Ég náði fyrsta hlaupinu í október og gerði fína hluti. Ég var hinsvegar að vinna þegar hlaup númer tvö var, minnir að þriðja hafi fallið niður vegna veðurs- og svo missteig ég mig illa og missti af síðasta hlaupi.
Eftir að ég missteig mig er ég bara búinn að hlaupa einu sinni og það var á bretti. Það reyndar gekk ágætlega en það er orðið langt síðan. Það er því ekki ólíklegt að ég verði frekar ónýtur í löppunum á morgun. Þetta er svo fljótt að detta niður hjá manni og svo mikið meira álag en að hjóla.
Í haust var ég kominn með það að markmiði að halda mér við í hlaupunum í vetur og jafnvel reyna að ná 10 km á undir 40 mínútum í vor. Ég dró í land þegar ég missteig mig og það var líka alveg nóg að púsla inn lyftingum og hjóli. Ég er samt staðráðinn í að byrja að hlaupa aftur í haust.
En ég fer í hlaupið í kvöld með það fyrir augum að vera með og taka því rólega. Það er hinsvegar meira en að segja það og ef ég þekki mig rétt þá verð ég að drepast á morgun.
Ummæli