Rosalegur pistill í burðarliðnum.
Preview úr ferðasögunni. |
Pistillinn er orðinn 4 metra langur, stútfullur af myndum og þar fer ég um víðan völl. Ég veð kannski svolítið úr einu í annað en er ekki bara að blaðra um hjól. Reyni m.a. að vekja athygli á því að Tenerife er meira en bara manngert túristaumhverfi við sjóinn. Vonandi mun einhver hafa gaman að þessu og kannski nýtist hann einhverjum sem eru í hugleiðingum um hjólaferðir.
Hluti af ástæðunni fyrir því að ég legg þetta á mig er að ég veit ósköp vel að þó þetta sé ferskt í minninu núna, þá mun fenna yfir það fljótt. Þá getur maður flett þessu upp og yljað sér við minninguna. Þetta er dagbók
Annars er ég að detta inn í 4 daga æfingablokk og verð að viðurkenna að frídagurinn í gær tók ekki úr mér alla þreytu. Kannski var bara of mikið að gera hjá mér. En ég held plani og reyni að gera sem minnst á milli æfinga um helgina.
Ummæli