Hvíldarvika

Þar sem ég er að fjalla um hvíld set ég bara þessa mynd með færslunni. Maður er hvort sem er ennþá með hausinn úti á Tenerife.

Í gær lauk ég þungri æfingaviku þar sem ég tók 6 hjólaæfingar og 2 lyftingaæfingar. Ég er í fínu líkamlegu standi eftir þetta og ég bæti kannski aðeins í klukkustundirnar á síðustu metrunum fyrir keppnistímabilið. Núna eru lyftingaæfingarnar líka að detta út og það einfaldar manni mjög skipulagið. Ég mun halda áfram að reyna að setja þetta upp í 3 daga blokkum með hvíldardegi á milli.

Núna er komin hvíldarvika og það passar fínt því ég þarf að fara suður með börnin um helgina og svo er síðasta Vetrarhlaup UFA á miðvikudaginn. Ég telst því góður ef ég kem inn 2 hjólaæfingum. Ætli maður taki svo ekki með sér hlaupaskóna suður svo maður nái smá hreyfingu í bænum og fylli út tímana sína.

Annars er alltaf smá tómleiki sem fylgir svona hvíldarvikum. Mér finnst gaman að æfa og kannski er maður líka bara sólginn í endorfínkikkið sem maður fær. Æfingarnar eru líka hugleiðsla fyrir mig og tímabundin útstimplun úr raunveruleikanum. 1-3 klst þar sem maður gleymir öllu daglegu amstri og kemur endurnærður til baka. Þegar maður fær svo allt í einu 2 daga í röð þar sem maður æfir ekkert þá finnst manni það hálf tómlegt.

Eins verður maður að passa sig á að gefa líkamanum frí jafnvel þó manni líði eins og maður geti haldið endalaust áfram. Það er mjög algengt að fólk vilji fara í ræktina á frídögum, synda eða gera eitthvað annað. Það er ekki frí. Maður þarf góða líkamlega hvíld, helst að gera sem minnst. Svo kemur maður ennþá sterkari til baka.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap