Á vellinum

Við Harpa mætt á völlinn.

Nú sitjum við á Akureyrarvelli og bíðum eftir að vera kölluð um borð. Reyndar ábyggilega klukkutími í það allavega. Fór að rifja upp fyrsta utanlandsflugið mitt frá þessum flugvelli (23. júlí, 2007) og gróf upp mjög skemmtilega bloggfærslu. Ástandið hérna er orðið aðeins avanseraðra en samt skemmtilega sveitó. Lesið færsluna hér

Það er búið að vera þónokkuð bras að græja hjólin og allt dótið í kringum það.

Nú sitjum við á borði með Önnu Lilju, Telmu og Sóleyju úr HFA sem eru allar að fara út að hjóla líka. Sjálfsagt eigum við eftir hjóla eitthvað með þeim og ræðum það hér yfir morgunbollanum.

Síðustu vikur á Strava.


Ég var hálf tussulegur síðustu daga og hef því verið rólegur í æfingum. Það er líka ekki gáfulegt að ganga of nálægt sér áður en maður sest upp í flugvél og andar að sér veirum og drullu úr öðru fólki. En það verður forvitnilegt að sjá hvernig þessi vika endar. Jæja ætla að hætta þessu blaðri og blanda geði við liðið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði