Rafmagnsleysi

Mitt annað heimili þessa dagana.

Ég sit í vinnunni og er búinn að stimpla mig út. Ástæðan er sú að það er rafmagnslaust í hluta Lundarhverfis og ég hef því ekkert að gera heima alveg strax. Rafmagnið kemur klukkan 17:15 og þá þarf ég að taka 1,5 klst æfingu. Síðan eldar maður sér bara eitthvað þokkalega hollt og leggst svo með tærnar upp í loft. Harpa er að vinna til klukkan 23:00 og þá fer ég yfir til hennar.

Eins og venjulega hef ég ekki hugmynd um hvað ég ætla að éta en freista þess að finna eitthvað af viti í Nettó á leiðinni heim. Ég át salat og kjúkling í hádeginu og er búinn að éta fisk þrisvar í þessari viku sem er óvenju vel gert. 

Í gær tók ég 2,5 klst æfingu á lágum vöttum og verð að viðurkenna að tíminn var óvenju lengi að líða. En það er s.s. ágætis núvitundaræfing að sitja svona lengi, hlusta á góða tónlist og tæma hugann. Ég var í nýju Pedla buxunum sem ég var að kaupa og maður fann ótrúlegan mun á púðanum. En ég á samt ennþá erfitt með að sitja svona lengi og þarf alltaf öðruhverju að standa upp og létta pressunni svo ég verði ekki dofinn. Ég er búinn að fá gott fitt á hjólin mín en á sennilega bara ennþá eftir að finna hnakk sem passar mér fullkomlega. Það er ekkert óalgengt að fólk þurfi að leita lengi og prófa marga ólíka hnakka áður en það dettur á það rétta. Þetta er mjög persónubundið.

Á morgun er lappaæfing í ræktinni og 1 klst rólegt á hjólinu. Á laugardaginn 3 klst rólegt og svo frí á sunnudaginn. Mér finnst æfingaplanið sem ég er að vinna eftir núna skila fínum árangri en ég hef s.s. ekki tekið FTP test lengi. Ætli ég stilli ekki upp 1-2 frídögum eftir Tene-ferðina og taki svo test aftur til að sjá hvað er í gangi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap