Low Cadence

Low cadence æfing til að auka styrk í löppunum. Þegar vöttin aukast hægir maður pedalsnúning úr ca. 85 niður í 50-60 snúninga á mínútu. 

Vegna rafmagnsleysis í gær þurfti ég að hræra í æfingunum mínum og byrja þessa 4 daga æfingablokk á langri æfingu á miðvikudag (2,5 klst) en svo taka low cadence (hægur pedalsnúningur) sem flokkast sem intensity æfing. Yfirleitt er best að byrja nýja æfingablokk á æfingum með mikilli ákefð og enda þær frekar á löngum æfingum á minna efforti. Þannig tryggir maður best að maður sé að ná að negla intensity æfinguna til að fá sem mest út úr henni.

Ég hafði s.s. ekki miklar áhyggjur af þessu þar sem ég er ennþá í grunnþjálfun og æfingarnar ekki mjög erfiðar. En ég fann alveg fyrir þessu í gær og langa "auðvelda" æfingin sat aðeins í mér. En ég kláraði þetta með bravour og passaði mig að éta vel á eftir og hvíla lappirnar fyrir framan imbann.

Í dag eru lappirnar svona þokkalegar þó ég finni fyrir þreytu en ég held plani, fer í ræktina á eftir að taka fótaæfingu og svo rólegan klukkutíma á hjólinu eftir það. Ef ég verð alveg grillaður á morgun get ég fært þriggja tíma æfinguna yfir á sunnudag, en það kemur í ljós.

Ég henti mér á viktina í gærmorgun og ég held áfram að þyngjast hægt og rólega. Ég held að þetta sé að hluta til lyftingar og svo hef ég verið að éta meira en ég gerði í fyrra. Það er langt í fyrstu keppni og ég hef engar áhyggur af þessu. En ég ætla samt að fara að hugsa um þetta þar sem það er miklu gáfulegra að nota base tímabilið í að ná réttri vikt í staðinn fyrir að reyna að létta sig þegar komið er inn í keppnistímabilið. Á þeim tíma er mjög mikilvægt að éta vel til að tryggja að maður standi undir öllu álaginu. En ég er líka að spá í að minnka aðeins ruslfæðið og sjá hvort ég geti farið niður um 1-2 kg áður en ég fer í allar brekkurnar á Tenerife.

Þessa vikuna hef ég fundið aðeins fyrir ökklameiðslunum frá því um daginn. Þetta er samt ekkert til að tala um, bara smá stirðleiki og vægur verkur stundum þegar ég labba, sérstaklega ef ég er búinn að standa mikið á hjólinu. Það lagast vonandi fljótt.

Annars er lífið yndislegt og Harpa í fríi um helgina. Við ætlum að njóta lífsins, æfa, borða góðan mat og ég ætla að reyna að plata hana með mér á listastafnið að skoða sýningu Ragnars Kjartanssonar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap