Konudeginum lokað á mánudegi
Harpa á Rub23. |
Harpa var að vinna á konudaginn og ég náði því ekki alveg að stjana jafn mikið við hana og ég hefði viljað. Ég bauð henni því út að borða á Rub23 í gærkvöldi og svo skelltum við okkur í Skógarböðin. Rub stóð undir væntingum eins og venjulega. Ég fékk mér bleikju sem var alveg afbragð og Harpa fékk sér grænmetisrétt sem var mjög góður. Þetta var fyrsta ferðin mín í Skógarböðin og ég verð að segja að það fór langt fram úr mínum væntingum. Hönnunin, staðsetningin og lýsingin upp á 10. Það var fallegt stjörnubjart kvöld og það vantaði bara norðurljós til að toppa þetta.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Börnin komin út til Tenerife með mömmu sinni og ég hef því nógan tíma til að dunda í æfingum og skipulagi fyrir mína Tenerife ferð. Það er meira en nóg að gera í vinnunni en sem betur fer ganga flest verkefni þokkalega þessa stundina.
Ég ætla að taka frí frá æfingum í dag og við Harpa ætluð að prufa að pakka hjólinu hennar í nýju töskuna. Síðan ætlum við að fara til Hafdísar í Pedal að ná í nýju hjólabuxurnar mínar og velja sólgleraugu (Harpa gaf mér gjafabréf í afmælisgjöf). Svo er bara að leggjast fyrir framan imbann og slappa af.
Harpa er að vinna á morgun og þessvegna færði ég aðeins til æfingar. Ég tek því 9 klst á fjórum dögum en verð svo í fríi á sunnudaginn.
Ummæli