Góð ákvörðun

Æfing gærdagsins- stærsti hjartsláttartoppurinn er error.

Á mánudaginn hvíldi ég þar sem ég var eitthvað illa upp lagður. Ég var einfaldlega bara þreyttur. Þetta var góð ákvörðun því að í gær tók ég æfingu og gekk alveg super vel og ég er því viss um að þetta var rétt ákvörðun. Þetta var rúmlega klukkustunda Z2 endurance æfing. Á eftir tók ég armbeygjur, magaæfingar, teygjur og upphífingar.

Það sem ég hef verið að vinna í upp á síðkastið er að negla betur niður æfinga- og hjartslátta-sónin mín og reyna að eyða meiri tíma í efripartinum á Z2. Í fyrra var ég ekki mikið að spá í hvort ég var í Z1 eða Z2 og var yfirleitt ekkert að spá of mikið í hjartslættinum.

Núna er ég farinn að fylgjast vel með hjartslættinum og lækka þá vöttin þegar ég er farinn að leka yfir í tempo (Z3). Æfingin í gær byrjaði í 165W en ég hækkaði svo í rólegheitunum upp þar til hjartslátturinn fór að leka yfir 130 bpm. Síðan var þetta smá balance en ég endaði með meðalpúls upp á 125 og leið mjög vel allan tímann.

Í dag er ég að spá í að henda inn einni klukkustunda tempo æfingu (2x15m 76-87% ftp) og fylgjast vel með hvernig ég bregst við því og hvort púlsinn haldist í tempo eða fari yfir það.

Ég er búinn að vera að halda matardagbók síðustu daga og það er mjög fróðlegt. Ætla að klára vikuna og birta hana svo hérna á blogginu. Hef verið að borða mjög "rétt" en held jafnvel að ég sé að éta of lítið af hitaeiningum miðað við æfingamagn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði