Fín vika þrátt fyrir eril og fjarveru

Vikan á Training Peaks.

Ég kom heim klukkan 19:30 á föstudaginn eftir erilsama viku í Reykjavík. Ég var straðráðinn í að taka æfingu um leið og ég kæmi heim en að lokum ákvað ég frekar að fara og hitta börnin áður en þau fara til Tenerife. Ég var búinn að ná 2 góðum dögum í æfingum í Reykjavík og sá ekki að þetta væri neitt "make or brake" fyrir mig og var hvort sem er útkeyrður eftir vikuna.

Í gær tók ég 2 klst endurance æfingu sem gekk bara vel og svo átti ég 3 klst endurance æfingu í dag (sunnudag). Síðari æfingin breyttist reyndar í eitthvað allt annað og var mikið erfiðari en ég ætlaði mér. Ég var í hæðóttri braut og endaði með því að vera mikið standandi upp brekkurnar í tempo/threshold og var ágætlega búinn á því á eftir. En það var s.s. ágætt að koma sér aðeins í gírinn fyrir brekkurnar á Tene.

Ég bauð börnunum upp á ís á föstudaginn. Mikið á ég eftir að sakna þeirra næstu 10 daga.

Vikan endaði því ljómandi vel þrátt fyrir að maður hafi verið að heiman. Það er alltaf hægt að finna einhverjar leiðir til að taka æfingar, jafnvel þó það riðli upprunalegum plönum. Aldrei gera ekki neitt.

Eftir æfinguna í dag er ég búinn að vera alveg afsakplega latur og afsaka það með því að ég hafi gott af því að hvíla lappirnar. Ég er ýmist búinn að liggja í sófanum, í baðinu eða í rúminu. Ég fór yfir æfingaplönin næstu vikur og er að gera smá breytingar. Ég er að hverfa frá því að horfa bara á tímabilin sem vikur og fókusera meira á 3 daga blokkir - þó tímafjöldinn per viku þurfi að ganga upp. Hugmyndin með þessu er að ná upp frekar miklu álagi á 3 dögum en ná svo alltaf einum degi í hvíld. Ég var að lenda of oft í að vera 5 daga í röð með æfingar sem er ekki endilega æskilegt.

Ég var einnig að breyta heildarplaninu mínu fyrir sumarið. Ég var búinn að vera að hugsa þetta út frá því að toppa bara 19. ágúst (Ormurinn) en þar sem eru svo mörg önnur mót sem ég verð að keppa á í millitíðinni þá kom þetta ekki vel út æfingalega séð. Ég bætti því við einu A-race í maí, sem er Mývatnshringurinn. Það er braut sem á að henta mér ágætlega ef það verður farið upp Hólasand eins og í fyrra.

Mataræðið hefur gengið bara vel hjá mér en ég hef ekki stígið á viktina óþarlega lengi. Hef grun um að ég hafi þyngst örlítið en það verður spennandi að sjá. Ég er búinn að leggja miklu áherslu á að borða bara nógu djöfulli mikið en hafa það hollt. Síðan hef ég leyft mér að sukka smá á nammidögunum. Í Reykjavík borðaði ég frekar skynsamlega og passaði mig á að hafa alltaf banana, hnetublöndu og próteindrykk við hendina.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap