Af markþjálfun, frestunaráráttu ofl.

Alba Optics frá www.pedal.is

Eftir góða viku í Reykjavík þar sem við náðum miklum árangri í stórum verkefnum, fór að síga á ógæfuhliðina hjá mér í vinnunni. Ókláruð erfið verkefni sem maður þurfti að dusta rykið af reynast erfið og maður sér ekki alveg fram úr hlutunum.

Þetta veldur mér vanlíðan og hrikalegu eyrðarleysi. Það miklu að ég þarf að beita mig hörðu bara til að vera að gera eitthvað. Fara í gegnum pósthólfið og hreinsa upp póst sem maður hummaði fram af sér, klára tímaskráningu eða jafnvel bara potast í einhverju sem þolir bið. Aldrei gera ekki neitt. Aldrei gefast upp.

Á sínum tíma þegar ég krassaði í vinnunni þá gafst ég upp. Ég hafði ekki reynsluna og þekkinguna til að glíma við ástandið. Ég sá ekki fram úr hlutunum. Sat bara frosinn við tölvuna og gat ekki gert nokkurn skapaðan hlut. Það var ekki skemmtileg upplifun.

Um daginn bauðst mér markþjálfun hérna í vinnunni og ég þáði nokkra tíma. Ég hef haft fordóma gagnvart þessu fyrirbæri en það kom að miklu leiti til af vanþekkingu. Markþjálfinn, yndæl kona að nafni Júlía, færði mér nefnilega nokkur ný verkfæri í töskuna sem ég reyni að beita núna þegar mér finnst allt vera komið í skrúfuna og langar að stökkva frá borði og synda í land.

Ég ætla ekki að fara djúpt í það sem fór okkar í millum en að stærstum hluta var það að ég fari betur að gera mér grein fyrir þeim hlutum sem ég hef stjórn á og ekki eyða of mikilli orku í að hafa áhyggjur af öðrum hlutum. Gera það sem ég get. Og ef fullt inbox af póstum (sumum mjög leiðinlegum) var að trufla mig þegar heim var komið, þá er bara að fara í gegnum þá áður en maður fer heim. Einfalt mál. Strika út af listanum og halda áfram. Aldrei að gera ekki neitt.

Að öðru leiti ganga hlutirnir vel og ástin blómstrar. Við Harpa erum á fullu að græja okkur fyrir hjólaferð á Tenerife og tilhlökkunin er mikil. Þessi elska gaf mér innleggsnótu fyrir hjólagleraugum í afmælisgjöf í fyrra og núna er ég að reyna að velja hvað ég á að taka. Þær eru erfiðar þessar stóru ákvarðanir í lífinu! Búinn að þrengja valið niður í 2 mismunandi umgjarðir en get ekki valið.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap