Low cadence

Það var fallegur morgunhimininn í Reykjavík þennan morguninn.

Ég þurfti að skella mér á fund hjá Ríkislögreglustjóra í Reykjavík í morgun. Við Sindri lögfræðingur í teyminu mínu flugum suður með fyrstu vél og til baka með kaffivélinni. Dagurinn nýttist því ekkert sérstaklega vel en það er samt alltaf ágætt að fá tilbreytingu, sértaklega þegar veðrið er fínt og allt gengur vel.

Ég tók 1,5 klst frekar erfiða endurance æfingu í gær og svo var low cadence (hægur snúningur) hjá mér í dag. Þar er markmiðið að taka frekar há vött en í stað þess að vera á 80-90 snúningum/mínútu þá fer maður alveg niður í 50-60 sn/mín. Stundum eru þessar æfingar kallaðar styrktaræfingar á hjólinu og fínt að gera þetta með endurance æfingunum í base season.

Low cadence training is ideal for on-the-bike strength training. The low rpm's create a scenario that allows you to pedal with high torque (high force). This extra torque requires more muscle fiber activation to push the cranks around, thus being great for strength training
Ég tók nákvæmlega sömu æfinguna í síðustu viku og þá gekk hún reyndar aðeins betur heldur en núna. Æfingin í gær sat kannski aðeins í manni og svo var maður búinn að vera á ferð og flugi allan daginn. En ég kláraði þetta alveg eins og lagt var upp með.

Æfingin í dag úr Training Peaks- pedalsnúningur (gult), vött (bleikt) og hjartskáttur (rautt).

Þessi vika átti að vera feit æfingablokk fyrir hvíldarviku og ég á 7 æfingar eftir á næstu 4 dögum. Í ljósi veikindanna upp á síðkastið ætla ég bara að spila þetta eftir hendinni og vera óhræddur að taka út æfingar og breyta ef ég er tæpur. Og að sjálfsögðu að passa mig að næra mig vel.

Talandi um næringu, þá var dagurinn í dag mjög fínn þrátt fyrir að maður væri á ferð og flugi. Svona dagar urðu gjarnan til þess að maður missti allt úr böndunum. Matseðill dagsins:
  • 07:15 - spínatdrykkur og brauðsneið með skinku og osti
  • 10:00 - jógúrt og banani
  • 12:30 - indverskur lambaréttur með salati, grjónum og nan
  • 15:00 - 1/2 próteinstykki og vatn
  • 17:00 - banani, hálft próteinstykki og vatn (á hjólinu)
  • 18:00 - Haframjólk með súkkulaði (eftir hjól)
  • 19:00 - gróft brauð með graflax og avocado og súrmjólk með múslí

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap