Fín vika að baki og nýtt ár byrjar bara vel

Við skelltum okkur á brennu í gær.

Ég og Harpa vorum með fjölskyldunni hennar á Svalbarðseyri í gærkvöldi og það var bara ljómandi gaman. Við vorum farin heim um klukkan eitt og kíktum aðeins á mynd. Held við höfum svo farið að sofa klukkan 03:30, edrú og frísk. Við vorum að reyna að rifja upp hvort við hefðum einhverntímann farið svona seint að sofa eftir að við byrjuðum saman og komumst að því að það hafi gerst kannski einu sinni áður. Gömlu gömlu...

Í dag lokaði ég vikunni með stuttu hlaupi til að athuga hvort hnéið á mér væri að skána. Áður en ég skellti mér út gerði ég liðleikarútínu fyrir mjaðmir og rúllaði mig vel. Ég fékk smá sting í hnéið fljótlega eftir að ég lagði af stað og þetta virðist ekki vera orðið nógu gott. Ég stefni að því að halda áfram að skokka eitthvað en strika sennilega út löngu hlaupin. Síðan stefni ég að því að taka Vetrarhlaup #3 í lok mánaðarins og sjá hvernig ég kem út úr því. Ef það sleppur til þá er ég ennþá að spá í að prufa að ná 10 km á undir 40 í vor.

Þegar ég var að koma heim úr hlaupinu áðan duttu mér í hug stundirnar sem maður eyddi á nýársdag uppi í sófa nær dauða en lífi af þynnku. Mikið er ég feginn að þeir tímar eru liðnir.

Síðustu 4 vikur á Strava.

Ég endaði vikuna með 8:37 klst og er búinn að bæta inn töluverðu hjóli. Ég gerði þetta mjög skynsamlega og er bara eiturferskur og hefur aldrei liðið betur. Núna ætla ég að henda inn æfingum fyrir næstu viku og hugsa að ég reyni að halda svipuðum dampi. Vikuna eftir það (þegar ég er ekki með börnin) er ég að spá í að taka eina megaviku og svo hvíldarviku eftir það. Eftir það þarf ég að búa til nýtt ATP (Annual Training Plan) og reyna að setja meiri strúktúr í þetta. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap