Vikulokin
Ullin bjargaði mér í dag. |
Ég lokaði vikunni áðan með 10 kílómetra hlaupi og svo henti ég mér á hjólið í 35 mínútur þegar ég kom inn til að lengja aðeins. En það er smá forsaga af þessu öllu. Harpa hringdi í mig í gærkvöldi og var komin með covid. Ég fór strax að ímynda mér allt hið versta, enda leið mér ekkert allt of vel sjálfum. Kvefið sem loks var á undanhaldi dagana áður var að versna aftur.
Í morgun skaust ég því niður í vinnu, en þar átti ég eitt slef-test til að prufa mig. Ég fékk neikvætt út úr því en treysti því ekki alveg. Ég fór því í apótek og keypti mér test með pinnum fyrir nef. Og ég fékk líka neikvætt úr því. Þó það sé svekkjandi að geta ekki hitt Hörpu í dag þá óneitanlega minnkar þetta flækjustigið næstu daga.
En í ljósi þess að ég var þó allega ekki með covid þá skellti ég mér út að hlaupa til að loka vikunni. Það var djöfull kalt og ég var strax að frjósa á tánum. Ég fékk líka fljótlega smá verk í hnéin og ég reikna með að þar hafi kuldinn líka spilað inn í. En ég hitnaði eftir nokkra kílómetra (líka á tánum) og þá datt ég bara í helvíti fínan gír og hélt púls upp á 120 til 130 bpm og hraða upp á 5:43 min/km. Mér leið því nokkuð vel á æfingum dagsins, bæði á hjólinu og í hlaupinu. En núna er ég eitthvað hálf tussulegur, með í maganum, stíflaður og með vægan hausverk.
Vikan á Strava. |
Þrátt fyrir kvef og slappleika mestalla vikuna þá hef ég náð að halda plani nokkuð vel án þess að ganga fram af mér. Ég skilaði af mér 7 klst og 31 mínútu; 1:49 í ræktinni, 1:33 á hlaupum og 4 klst og 8 mínútur í hnakknum. Utan við kvefið þá er skrokkurinn fínn, lítil sem engin þreyta og ég held að þetta sé allt á réttri leið. Ég reyndar missti eitthvað yfirsýnina og sé að ég er ekki búinn að hvíla í heila viku, en á móti kemur að þetta hafa ekki verið neinar kjarnorkuæfingar. Mest allt á lágu tempói.
Á morgun (mánudag) fer ég í ræktina að taka efripart en svo er frí á þriðjudaginn. Á fimmtudaginn fer ég á foreldrakörfuboltaæfingu með Brynleifi og er ekkert smá spenntur. Þetta á víst að vera skotæfing og svo eigum við að taka one on one.
Ummæli