Var Jón hlaupari góður hlaupari?
Jón Guðlaugsson - Mynd Rúnar Gunnarsson -www.flickr.com |
Hver man ekki eftir Jóni hlaupara? Það er kannski tímanna tákn að alltaf var litið á manninn sem furðufugl eða rugludall. Reyndar heyrði maður oft eitthvað mun verra en það. Ég þekkti manninn ekki neitt og ætla ekki að dæma um hvort eða hvað gekk að honum, en hann var sannarlega litríkur karakter, pent orðað. Maður man eftir fleiri svona karakterum hér á Akureyri en þeir finnast varla lengur.
Ég ætla ekki að leggjast í eitthvað sagnfræðigrúsk hér og nú en það væri sannarlega gaman ef einhver gæfi sér tíma til að skrifa eitthvað um hann og draga upp mynd af honum. Ég reyndar fletti honum upp á Íslendingabók að gamni og sé að sameiginlegur forfaðir okkar var Stefán Jónsson (1746) bóndi á Litlahóli og Guðrúnarstöðum í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði. Jón hlaupari og langalangamma mín Kristín Jónsdóttir á Sandi voru fjórmenningar. Hér er svo minningargrein um Jón ef einhver hefur áhuga að lesa um þennan undarlega Borgfirðing sem fluttist norður yfir heiðar.
Jón barst í tal á kaffistofunni í vinnunnni í gær og við fórum eitthvað að velta fyrir okkur hlaupaferlinum hjá honum, sem allavega undir það síðasta virtist nokkuð áráttukenndur. Maður man eftir honum slagandi um með tunguna hangandi út úr sér og hann virtist alveg vera að ganga fram af sér. Hann var með allskyns furðulegar kenningar, t.d. heyrði ég hann tala um að skvetta fótunum upp í rassinn til að sparka sér áfram. Tungan og ofsafengin öndunin var svo til að reyna að fanga sem mest súrefni.
Ég tók saman upplýsingar úr afrekaskrá og uppreiknaði hraða til gamans. |
Jón hljóp fyrstur Íslendinga maraþonhlaup árið 1968 og tók þátt í Reykjavíkumaraþoninu 28 sinnum, sem er met. Hann á 11 skráð Íslandsmet (ekki öll í töflu) og þau setur hann öll eftir 60 ára aldur. Þar held ég standi upp úr hlaup árið 1993 þegar hann er 67 ára gamall og hleypur maraþon á tímanum 3 klst. og 28 mínútum sem er hraði upp á 04:56 min/km. Sex árum síðar, þá 73 ára hleypur hann hálft maraþon á tæpum 2 klst.
Árið 1963 þegar Jón er 37 ára hleypur hann 10 km á tímanum 36 mínútur sem hefði skilað honum 10 sæti í þeirri veglengd í RM Íslandsbanka 2022 og öðru sæti í Akureyrarhlaupinu 2022. Tíminn hefði komið honum ofarlega í flestum opnum götuhlaupum sem haldin eru í dag.
Árið 1961 hleypur Jón 5 km hlaup á rétt rúmum 16 mínútum og með þessum tíma hefði hann rústað 5 km Akureyrarhlaupi 2022 og 1. maí hlaupi UFA sama ár. Og hann hefði sennilega verið mjög ofarlega í flestum 5 km götuhlaupum sem haldin eru í dag á Íslandi. Skv. Runners World Race Calculator er meðalmaraþontími hjá hlaupara sem klárar 5 km á þessum tíma 3 klst. sem hefði veitt honum inngöngu í Boston maraþonið.
Þegar Jón er 86 ára hleypur hann svo 5 km hlaup á rúmum 32 mínútum sem er alveg galið!! Þeir sem fara reglulega út að skokka hljóta að sjá að þessi árangur er alveg með ólíkindum.
Ég hef ekki næga þekkingu á styttri vegalengdum til að fabúlera um þær og það þyrfti að skoða það í samhengi við Íslandsmet þess tíma til að átta sig á því hvar hann stóð. En hann hefur klárlega verið í helvíti fínu formi.
Það sem mér finnst standa upp úr við að skoða þetta allt saman er aðalega þetta:
- Jón hélt sér í ótrúlegu formi allt fram á grafarbakkann. Hann keppti í víðavangshlaupi árið sem hann lést, 90 ára gamall. Hann setti 11 íslandsmet eftir að hann varð 60 ára.
- Tímarnir sem hann náði í 5- og 10 km hlaupum þarf að setja í samhengi við þann tíma sem hlaupin áttu sér stað. Veðurfar á þeim tíma var allt annað, vegir og slóðar mun erfiðari og lítill sem enginn snjómokstur að vetri. Hlaupatímabilið hefur verið stutt, lítið var vitað um æfingar og mataræði og útbúnaður og skór á allt öðru kaliberi en gengur og gerist í dag.
Jón var sannarlega ekki eins og við erum flest. Hvort að hans krankleiki var ástæða þess að hann var svona öflugur hlaupari eða hvort það hamlaði honum er erfitt að segja. En ef hann væri upp á sitt besta í dag og væri í hlauparasamfélaginu hér á Akureyri þá væri kannski bara 1 maður sem hefði roð í hann. Það er býsna vel gert.
Ummæli