Neikvæðni

Ég er búinn að testa mig 5 sinnum síðustu vikuna og sem betur fer hef ég alltaf fengið neikvætt.

Ég var heldur skárri í gær heldur en ég hef verið þegar ég kom úr vinnunni. Ég var búinn að ætla að fara út að hlaupa en frostið var bara svo mikið að ég ákvað að láta hjólið nægja. Ég setti upp 1,5 klst endurance æfingu þar sem ég var í 2,6 w/kg. Það var alveg krefjandi en ég hefði s.s. alveg getað haldið áfram.

Eftir æfinguna leið mér prýðilega vel þó ég væri drullu stíflaður í nefinu. Fékk smá hausverk um klukkan 22 í gærkvöldi en hélt samt að ég væri að ná að vinda ofan af öllu þessu rugli og ná bata. Í morgun hafði hinsvegar hálsbólgan og kvefið versnað. Þegar leið á daginn í dag endaði ég með því að testa mig- en fékk sem betur fer neikvætt út.

Ætli ég verði ekki að fara að éta það ofan í mig að ég sé ekki að gefa líkamanum nægilegt svigrúm til að jafna sig á þessu og verði að slaka á í æfingunum. Ég var búinn að setja upp plan fyrir 9 klst æfingaviku en nú mun ég þurfa að skera verulega niður. "You have to know when to pull the plug" er oft sagt.

Researchers found that performing aerobic exercise at a moderate to vigorous intensity for less than 60 minutes (an average of 30–45 minutes) increases the recruitment and circulation of the immune system’s best defensive cells.

Rannsóknir hafa hinsvegar sýnt að hreyfing í 30-45 mínútur á rólegu tempói geta flýtt fyrir bata og venjulega er fólki ekki ráðið frá því að taka æfingar ef það er bara með kvef og særindi í hálsi. Þumalputtareglan er að það sé í lagi svo lengi sem veikindin eru ekki fyrir neðan háls. Bara stytta æfingar og hafa þær auðveldar. Sálræni þátturinn er líka mikilvægur í þessu sambandi þar sem manni líður alltaf betur þegar maður hefur hreyft sig.

Ég ætla líka að fara í búðina á eftir og byrgja mig upp af einhverju hollu stöffi til að troða í mig. Það sakar örugglega ekki.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap