Meir snjór, meiri snjór, meiri snjór....
Það snjóar og snjóar. |
Það er óhætt að segja að veturinn sé skollinn á hérna á Akureyri. Reyndar sýnist manni á fréttum að við séum ekkert að fara sérstaklega illa út úr þessu miðað við önnur landsvæði. Veðurfarið í haust og vetur hefur einkennst af óvenjumiklum stöðuleika. Reyndar það miklum að maður reiknar passlega með reikningsskilum fljótlega í formi einhvers viðbjóðs.
September til desember einkenndust af kyrru og hlýju veðri. Það var frekar blautt, en þó ekki eins mikil rigning og t.d. fyrir austan. Síðan tóku við froststillur og nú hefur snjóað mikið í logni og það er kominn býsna mikill snjór í bænum. Ég hef s.s. ekki verið mikill vetrarmaður en finnst þetta allt í lagi þegar stígar og gangstéttar eru hreinsaðar regluglega og veðrið hefur frið. Svo er náttúrulega voðalega jólalegt um að litast.
Á meðan veðrið er svona þá gæti ég s.s. alveg tekið einhverjar hjólaæfingar á fatbike-inu úti en hef ekki nennt að græja mig í það. Það er svolítið snúið að klæða sig rétt í svona miklum kulda þegar maður er að hjóla. Manni er ýmist of kalt eða svitnar of mikið. Síðan þyrfti ég að eiga hlýrri skó og góða vettlinga. Að lokum má segja að ef maður er að æfa eftir plani og taka strúktúreraðar æfingar, þá er miklu auðveldara að negla þær á trainer-num inni þar sem maður heldur nákvæmlega réttum vöttum og tíma.
Þó ég hafi bara verið búinn að taka hjólaæfingar tvo daga í röð núna þá fann ég smá þreytu í fótunum í morgun. Ég stillti því aðeins æfingaplanið af og færði æfingu dagsins (sem er erfið) yfir á morgundaginn. Þá koma reyndar æfingar allavega 5 daga í röð en það er mjög rólegur sunnudagur með stuttu skokki og teygjum þannig ég hlýt að hafa það af.
Ég er ennþá ekki búinn að ákveða nkl. hvernig ég set upp plan fyrir veturinn og ætli þetta endi ekki bara eins og síðast að ég sé bara eitthvað að gaufa eftir tilfinningu. Það auðveldar þetta heldur ekkert að vera ekki með nein sérstök markmið. Fyrsta skrefið í því er kannski að setjast niður og gera upp síðasta tímabil, skoða hvað ég lærði, hvar ég stend og reyna að átta mig á því hvert ég stefni. Það kemur vonandi fljótlega.
Ummæli