Jólahlaupið🎅🏻🎄

Aðfangadagshlaup 2022.

Ég skellti mér út í "langt" hlaup í gær til að loka vikunni. Ég var búinn að ákveða að fara 15 km ef hnéin myndu leyfa það. Það var fallegt veður í sveitinni og frostið í kringum -20°C. Í kuldapollinum við Neslönd fór það alveg niður í -23°C. En ég klæddi mig bara vel, fór í tvennar buxur, var með 2 buff, ullarhúfu og tvenna vettlinga.

Hlaupið gekk bara vel til að byrja með en eftir ca. 6 km fór ég að fá verki í hægra hnéið sem var að stríða mér síðast þegar ég hljóp. Ég hélt samt bara áfram og reiknaði með að þetta myndi skána. Sú varð nú ekki raunin og þegar ég var kominn í tæplega 11 km vissi ég að þetta væri búið spil. Þegar ég labbaði síðasta spölinn upp á  hólinn heima var ég kominn með alveg djöfullegan verk og orðinn draghalltur.

Annars gekk hlaupið vel og púlsinn var í 126 bpm fyrri partinn en svo jók ég aðeins hraðar seinni partinn og þá var hann í 136 slögum á mínútu. Þetta var því fín endurance æfing.

Ég er helvíti svektur með þessa afturför í hlaupunum og veit ekki alveg hvað skal gera. Ég ætla að keppa í Vetrarhlaupi UFA á miðvikudaginn og ég þarf eiginlega að prufa að taka eina stutta æfingu þar sem ég teygi vel og rúlla áður. Helga tók mig í brútal sjúkranudd þegar ég kom inn og fór yfir nokkrar æfingar sem ég á að vera duglegur að gera. Hún telur orsakirnar vera stífleika í lærvöðvum (framan), ITB bandi, gluteus medialis og framan á mjöðmum.

Síðuastu 4 vikur á Strava.

Miðað við álagið fyrir jólin og í vinnunni þá var þessi vika í aðdraganda jóla ekki svo slæm. Tvær góðar lyftingaæfingar, ein góð endurance æfing á hjólinu, tip-top threshold æfing og eitt langt hlaup verða að teljast gott.

Núna veit ég hinsvegar að ég verð að fara að æfa markvissara ef ég ætla að setja mér einhver háleit markmið á hjólinu. En þar stendur kannski líka hnífurinn í kúnni- ég er ekkert rosalega mótíveraður fyrir Íslandsmótin sem verða í sumar og tími eiginlega ekki að fórna ræktinni út. En það er þá kannski bara kominn tími til að negla niður einhver góð markmið svo maður vafri ekki um stefnulaust. Það er ekkert gaman til lengdar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap