Brjáluð traffík

Jólahjól.

Ég man eftir að hafa oftar en einu sinni skrifað vælupistla hérna inn þar sem ég var að velta fyrir mér að hætta að blogga. Á þeim tíma gerði ég það mjög óreglulega og traffíkin hérna inn var alveg dottin niður. Kannski var ég að vona að ég fengi haug af skilaboðum frá fólki um víða verlöld sem grátbæðu mig um að slíðra ekki pennan. Það gerðist nú ekki.

En svo girti ég mig í brók og fór að skrifa og skrifa, bara fyrir sjálfan mig. Nú blogg ég helst daglega, aðalega um æfingarnar mínar og það helsta sem á daga okkar drífur. Þetta er hálf stefnulaust allt saman og stundum veit ég ekkert hvert ég stefni með þessu öllu. En þetta hefur greinilega verið að virka því ég er orðlaus yfir því hvað er oft mikil traffík hingað inn. Mér finnst ofsalega vænt um það.

Stundum velti ég því fyrir mér hvort ég geti hent inn auglýsingum frá helstu verslunum sem ég versla við gegn afslætti. Í staðinn gæti ég fjallað aðeins um vörurnar frá þeim. Ég nenni ekki að hafa þetta of græjumiðað blogg en væri alveg til í að fá afsláttinn. Sakar ekki að reyna.

Í morgun vöknuðum við Harpa kl. 07:30 og hún skellti sér í ræktina. Ég slappaði af í klukkutíma en fór svo að græja mig á hjólið. Ég var búinn að skrá mig í 100 km Group Ride á Zwift en stefndi nú ekki endilega að því að klára það. Eins og oft áður þá splittaðist hópurinn hratt upp og þegar maður var farinn að þurfa að hafa sig allan við í að halda í fremstu menn þá nennti ég þessu ekki lengur. Þetta átti að vera rólegur dagur og mig langar til að eiga orku inni til að hlaupa á morgun.

Æfingin endaði í 1,5 klst og ég hjólaði tæpa 55 km. Meðalpúls var 147 og þetta var því ekk Z2 heldur meira tempo ride. Ég ætla að reina að halda púlsinum í ca. 120 í hlaupinu á morgun, s.s. hraði upp á ca. 6 min/km.

Ég er kominn upp í 6 klst af æfingum í þessar viku og ætli ég bæti ekki 1,5 á morgun. Það er snjór og fallegt hérna á Akureyri og óneitanlega skemmtilegra að skokka úti heldur en að hamstrast á hjóli í stofunni hjá sér.

Jæja góðir hálsar, nú ætla ég að henda mér í bað og svo kíkja í jólastúss með púkunum mínum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap