Yndislega hversdagslíf
Ég og Dagbjört skelltum okkur í verslunarleiðangur í Bónus í dag. |
Það eru ótalmargir hlutir í lífinu sem maður þarf að gera sama hvort manni líkar það betur eða verr. Elda, vaska upp, þvo þvott, fara með dósir, fara í BYKO og kaupa tappa undir stóla, fara til tannlæknis, umpotta, þrífa baðið og fara í búðina. Já og vinna. Við sofum þriðjunginn af ævinni og eyðum restinni (næstum því) í eitthvað hversdagslegt. Afhverju ættum við þá ekki bara að reyna að hafa gaman af því?
Það sem ég græddi á burnoutinu og skilnaðinum hér um árið var að ég fór að líta allt öðruvísi á þessa hluti. Börnin spila náttúrulega stóra rullu í þessu því þau gefa þessu öllu tilgang. Og ég áttaði mig á því að ég vildi glaður lifa fyrir það eitt að vakna með börnunum mínum, koma þeim á fætur, gefa þeim að borða og fara í vinnuna. Ég fór að njóta hversdagsins.
Bíllausi lífstíllinn ýtti manni svo ennþá lengra í þessa átt (að vera í núinu), því margir hlutir taka mig og börnin mun lengri tíma en ef við ættum bíl. Maður þarf að gíra sig öðruvísi í daginn, skipuleggja sig öðruvísi og átta sig á því að maður væri hvort sem er örugglega ekki að gera neitt merkilegra. Hvað börnin snertir, snýst þetta líka um að snúa þessu upp í lítil ævintýri og hjólaferðir. Leyfa þeim að velja leiðina og kaupa kannski smá hressingu og verðlaun.
Við Dagbjört settum töskur á ferðahjólið eftir skóla í dag og skelltum okkur í Bónus. Veðrið var dásamlegt og hún er orðin býsna rösk að hjóla. Kvartar sjaldan eða aldrei yfir að vera þreytt í brekkum þó hún sé ekki komin á gírahjól. Eftir að hafa keypt veitingar fyrir afmælið hans Brynleifs sem verður í Kjarnaskógi á morgun leyfði ég henni svo að velja aðra leið heim og við spjölluðum um heima og geima.
Eftir að heim var komið tók ég klukkutíma endurance æfingu. Ég valdi mér aftur samhjól (group ride) en í þetta skipti valdi ég rólegri hóp og þetta var næstum of rólegt. Þetta voru 37 km og meðalpúlsinn var ekki nema 113. Ég fór mjög létt með þetta og ég er hissa hvað ég hef haldið hjólaforminu bara með hlaupunum. Ég er eiginlega bara í fantaformi.
Ég hugsa að ég hvíli á morgun en svo tek ég líklega 5 daga í röð- inni í því er langt hlaup, löng hjólaæfing og lyftingar.
Ummæli