Þvílíkur afmælisdagur í gær!!
Fékk m.a. þetta geggjaða Pedla endurskynsvesti og nýja húfu undir hjálminn frá Hörpu. |
Það er óhætt að segja að ég sé í skýjunum með afmælisdaginn minn í gær. Fékk alveg urmul af góðum kveðjum héðan og þaðan og mínir nánustu böðuðu mig svoleiðis upp úr gjöfum að ég á eiginlega bara ekki eitt einasta orð. Deginum eyddi ég svo að mestu með Hörpu sem bauð mér svo út að borða á Rub23 þar sem við áttum rómantíska kvöldstund.
Ég fékk mér sushi á Rub23 í gær og það klikkaði náttúrulega ekki. |
Eins og lög gera ráð fyrir þá náttúrulega tróð ég svoleiðis í mig krásum í gær að það var farið að flæða út um öll göt þegar ég lagðist á koddann. Og ég nýtti líka daginn í að hvíla mig vel fyrir næstu æfingatörn sem hófst í dag með tempo-hlaupi og heimsókn í ræktina. Á morgun tek ég svo 1-2 tíma á hjólinu, lyftingar á föstudag, hjól á laugardag og langt hlaup á sunnudag. Maður verður að hafa eitthvað að gera.
Tempo-hlaup dagsins. |
Hlaupið í dag gekk þrusu vel. Ég var kannski svolítið stirður í byrjun en þegar ég gaf í eftir rúman kílómeter fór mér að líða betur. Ég ákvað að taka 2x1600 m spretti og vera aðeins undir keppnishraða. Ég gerði þetta eftir tilfinningu og sé að ég hef greinilega gefið aðeins í í seinni sprettinum án þess að vera neitt að streða. Hlaupið í heildina var 5,33 km, hraðinn 5:15 min/km að meðaltali og meðalpúlsinn 143 bpm. Nú vona ég innilega að það verði gott færi í næsta vetrarhlaupi og vegalengdin styttri en síðast. Ég hef á tilfinningunni að ég geti náð 5 km á 20 mínútum sem er bara ágætt fyrir hálfníræðan mann.
Ummæli