Örpóstur- með laskaða skrúfu og bilaða vél
Myndin tengist þessu væli ekki neitt en hún er tekin í Kistufelli 2021, bestu hjólaferð sem ég hef farið í. |
Ég þurfti að rótera hjá mér æfingum þessa vikuna eins og enginn sé morgundagurinn. Ég er að fara til Reykjavíkur í hádeginu í dag og þetta er búið að vera rosalegt púsluspil. Börnin verða munaðarlaus til klukkan 18 í dag og þurfa sjálf að græja sig á Halloween ball eftir skóla, næra sig og klæða. En þau eru seig og þetta reddast allt. Manni hættir til að vantreysta börnum og ofvernda þau en þau koma manni sífellt á óvart.
Ég skellti mér í hálfgildings hlaupaspretti klukkan 6 í morgun og ég var frekar slappur. Lappirnar eru sjúskaðar og ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti bara að lulla rólega. Á endanum lét ég mig hafa það og vonandi var ég ekki að gera mér illt með þessu. Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að snúa mér í þessum hlaupum núna. Ég er oft mjög stirður en er ekki með nein einkenni þegar ég er búinn. Ég held bara áfram að reyna að vera skynsamur og sé hvort þetta venjist ekki.
Þar sem ég sá fram á að vikan væri öll að riðlast hjá mér þá skellti ég mér í ræktina í gær og þar var hörku æfing fyrir efripartinn. Á laugardaginn tek ég svo 1,5 - 2 klukkutíma á hjólinu og reyni að taka langt hlaup á sunnudaginn ef lappirnar leyfa.
Ummæli