Lumbra
Það var jólahlaðborð hjá okkur í vinnunni á föstudaginn og það heppnaðist rosalega vel. Smáréttahlaðborð frá Strikinu sem fékk góða einkunn frá öllum viðstöddum. |
Eftir fínt hjólerí á laugardaginn fór eitthvað heldur að síga á ógæfuhliðina hjá mér heilsufarslega séð. Ég fór að finna fyrir slappleika og kvefi um kvöldið og svo varð mér skítkalt. Ég lá því bara fyrir og hafði það notalegt og horfði á HM. Það eru búin að vera mikil veikindi í vinnunni og ég hélt ég væri að taka pestina.
Í gær leið mér hinsvegar mikið mun betur en ákvað samt að taka því bara rólega því æfingadagatalið hjá mér var orðið nokkuð skrautlegt. Mér leið s.s. ágætlega í líkamanum en maður verður stundum að taka hvíld svo maður gefi kroppnum séns á að bæta sig. Ég tók þetta mjög hátíðlega og lá fyrir framan sjónvarpið í allan gærdag.
Ég er hinsvegar ekkert sérstaklega hress í dag, með vægan hausverk, smá kverkaskít og mér er skítkalt. Ég á tíma í ræktinni seinnpartinn og ég ætla að sjá til hvort ég hressist ekki eitthvað. Þetta er bara svona óþolandi ástand að vera hvorki veikur né fullfrískur.
Ég komst að því áðan að ég mun missa af öðru vetrarhlaupi UFA og er alveg miður mín yfir því. Ég gerði mistök þegar ég tók frá ranga dagsetningu í dagatalinu. Ég verð því á fundi á Egilsstöðum þegar hlaupið fer fram. Í staðinn er ég að spá í að reyna að bæta tímann minn í 5 km hlaupi seinna í vikunni. Þ.e. ef ég er ekki að verða lasinn.
d
Ummæli