Föstudagur

Ætlaði að setja aðra mynd inn sem meikaði meiri sens með færslunni en týndi henni. Þessi frá Sprengisandi 2021 kemur bara í staðinn.

Finnst ég verði að kvitta hér uppá þar sem ég veit ekki hvort ég muni hafa tíma í það um helgina. Reyndar hef ég ekki frá neinu að segja, bara venjulegt amstur hversdagsins og því hefur fylgt óvenjumikið eirðarleysi. 

Ég geri mér ekki grein fyrir hvers vegna, en það lýsir sér í því að mér finnst ég ekki geta setið kyrr og er með eitthvað samviskubit yfir að vera ekki búinn að gera eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Djúpstæður andlegur óróleiki. Ég hlakka alltaf til að vera farinn að gera næsta hlut en þegar til kastanna kemur nýt ég þess ekki heldur. Heitir þetta ekki að vera ekki í núinu? Þetta hlýtur að líða hjá.

Hef annars verið að æfa vel og éta frekar skynsamlega. Annars er þetta bara venjulegur föstudagur og týpískur að því leiti að ég nenni ómögulega að elda. Langar í eitthvað fljótlegt, hollt, gott og ódýrt. S.s. einhver blanda sem er ekki til. Er að fara að henda mér í ræktina og svo er hjólaæfing á morgun.
Góða helgi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap