Föstudagur til fjár

Puru- og lambasteik á jólamatseðli Rub23.


Þessi vika hefur flogið hjá og það er búið að vera brjálað að gera. Allt teymið mitt var í bænum og við notuðum 2 daga í skemmtiferðir og vinnustofur. Eins og lög gera ráð fyrir þá skelltum við okkur líka út að borða og ég verð að minnast á jólamatseðil Rub23. 

Bornir eru fram 4 diskar með samtals 9 mismunandi réttum og kosta herlegheitin 10.900 kr. Hreindýrataco, húskarlahangikjöt, grísadömpling, léttgrafin bleikja, kálfakinn, purusteik, lambasteik, ís og ris a la mand. Við vorum 7 sem snæddum þetta og það var mál okkar allra að þetta væri með því besta sem við hefðum komist í á veitingahúsi. Ég gæti ekki mælt meira með þessu og tæki þetta alltaf fram yfir jólahlaðborð enda frumlegra, betra og skammturinn vel ríflegur.

Æfingar hafa gengið vel en ég er búinn að vera á stanslausu ofáti þannig að markmið um að vera orðinn léttari fyrir Vetrarhlaupið í næstu viku eru farin í vaskinn- skítt með það. Ég hjólaði 55km í gær eftir vinnu og er að fara í ræktina í dag. Ætla að taka 100 km Group Ride á Zwift á morgun og svo er langt hlaup á sunnudaginn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap