Eymsli, það er rétta orðið
Ein gömul og góð síðan ég var að reyna að koma Mývetningum úr sófanum. Aðventuhlaup 2014. |
Ég var aðeins að lesa mér til um "muscle soreness", þ.e. er eymsli í vöðvum vegna hlaupa. Þetta orð eymsli var einhvern veginn alveg stolið úr mér, en þetta lýsir því best hvernig mér hefur liðið í löppunum upp á síðkastið þegar ég hef verið að hlaupa. Eins og ég hef komið inn á þá er ég að reyna að feta einhverja fína línu milli þess að halda uppi þokkalegu álagi og bæta mig í hlaupunum og að hlaupa mig ekki í meiðsli. Fara eins nálægt brúninni og hægt er án þess að detta fram af.
Ég hef s.s. frekar upplifað þetta sem eymsli frekar en meiðsli og þar sem mér líður vel um leið og hlaupunum líkur þá hef ég ekki haft of miklar áhyggjur. En þetta er samt drullu pirrandi og ég velti því fyrir mér hvort ég fari ekki að losna við þetta? Einnig hvort ég sé að þróa með mér álagsmeiðsli.
Muscle soreness is characterized by a tired or tight feeling while exercising, a dull and achy feeling while at rest, or tenderness when touching the muscles. It occurs during exercise and up to 72 hours after activity, and typically lasts two to three days. Muscle soreness improves with stretching, more movement or activity and with appropriate rest and recovery from exercise, and worsens with sitting still.
Mér hefur fundist það hjálpa mér að teygja vel á fyrir hlaupin og gamla ráðið hans Stefáns sjúkraþjálfara um að rúlla mig áður en ég fer af stað virkar líka mjög vel. Eitt sem kemur fram í greininni sem ég vitna í hér að ofan er að ef eymslin minnka þegar maður er orðinn heitur þá er allt í lagi að halda áfram, ef ekki þá ætti maður sennilega að skrúfa niður, hætta eða finna sér eitthvað annað að gera þann daginn. Það gerði ég ekki í gær.
Ég á 1,5 klst endurance æfingu á hjólinu á morgun og langt hlaup á sunnudaginn. Ég er ekki búinn að vera að hlaupa mikið síðustu daga og ef sunnudagshlaupið verður ekki gott þá þarf ég að fara að endurskoða þetta allt saman, stytta hlaupin, fara meira í kirkjutröppurnar og leggja áherslu á teygjur og liðleika.
Annars er ég ennþá í Reykjavík og ég og pabbi áttum frábæran dag í gær. Hann bauð mér út að borða á Eriksen (sem ég mæli eindregið með) og eftir það fórum við til Maju og Gísla og áttum notalega kvöldstund. Ég vona að ég komist í flug í kvöld norður aftur en annars þarf ég að reyna að finna mér hótel og sé til hvort ég nenni að kíkja í heimsókn einhvert.
Ummæli