Vetrarhlaup UFA- uppgjör.
Team Fljótfær! |
Þá er fyrsta Vetrarhlaupið búið og það er óhætt að segja að það hafi verið hrikalega gaman, en erfitt. Alveg eins og það á að vera. Ekki var það heldur til að eyðileggja stemmninguna að ég lenti óvænt í liði. Menn að nafni Atli og Elli gengu upp að mér og Kristni á Grænavatni og sögðu að við værum með þeim og Rakel hans Ása í liðinu Fljótfær (ég þekki þetta fólk samt ekki neitt).
Eftir að hafa hitað sæmilega upp kom ég mér fyrir á ráslínu í miðjum hópnum. Það kom mér á óvart hvað startið var hægt og ég þokaði mér upp hópinn í rólegheitum og fannst hraðinn bara vera þægilegur þó þetta væri á fótinn. Ég reyndi að spara mig í bröttustu brekkunum, en þegar við vorum komin upp fyrir kirkjuna á Hesjuvöllum fór maður að gefa í niður í móti. Á þeim kafla missti ég 2 hlaupara frá mér og aðrir 3 náðu mér. Þarna hélt ég að ég væri að gefa eftir og beið eftir að fleir kæmu fram úr.
Graf yfir hæð og hraða. |
Þegar við vorum að koma að Benna Jensen var ég aðeins farinn að hafa áhyggjur af því að ég hefði byrjað þetta of geyst og ekki viss um að ég gæti haldið þessum hraða. Tveir af hlaupurunum sem höfðu náð mér voru að fjarlægjast og ég var með eina konu á hælunum á mér. En í brekkunni upp frá Lónsbakka stakk ég konuna af og hljóp annan þeirra sem tók fram úr mér uppi.
Þetta hélt áfram að vera ströggl og púlsinn hjá mér var constant yfir því sem ég hélt í sumar að væri hámarkspúls. Í Giljahverfinu var ég samt farinn að átta mig á því að ég myndi sennilega halda þetta út. Þar hljóp ég annan gaur uppi og setti mér að markmiði að ná fleirum í brekkunum upp að Norðurorku. Í fyrstu brekkunni hljóp ég strák sem heitir Ingvar af mér en sá sprettur kláraði mig líka alveg og ég náði ekki fleirum. Þetta var VO2max effort og ég var farinn að anda óreglulega og að kafna. Ég gaf allt í þetta.
Tölurnar fyrir hlaupið. |
En niðurstaðan var að ég held að ég hafi verið ca. númer 10 í heildina (það á eftir að birta úrslitin) og ég gæti bara ekki verið sáttari við niðurstöðuna. Ég er búinn að æfa fyrir þetta í 4 vikur og hef ekki getað hlaupið í mörg ár. Ég var verkjalaus allan tímann en veit s.s. ekki hvernig ég verð á morgun. Hraðinn sem ég hélt þrátt fyrir nokkuð af brekkum er ekki langt frá því sem ég var að vonast til að geta haldið í 5 km hlaupi. Hröðustu 5 km mínir í þessu hlaupi voru 21:43 mín.
Næst skrifa ég smá pælingar um hvað ég geri í framhaldinu, en það er allavega á hreinu að ég get ekki svikið liðið mitt og verð að mæta í Vetrarhlaupin sem eftir eru.
Uppfært: Nú eru úrslitin komin og ég hef sennilega verið með svo mikinn svita í augunum að ég hafi ekki alveg áttað mig á fjölda hlaupara í markinu. Ég varð 15. í heildarúrslitum karla af 33 og 8. af 21 keppanda í +40. En ég er samt gríðarlega ánægður með þetta og tel þetta góð úrslit.
Ummæli