Vetrarfæri, hlaup og rækt.
Dagbjört að koma úr fimleikum í gær. |
Nú þegar það er búið að snjóa á okkur hérna fyrir norðan þá var ágætt að vera með Pugginn tilbúinn á nöglum. Ég þurfti að sækja Dagbjörtu úr fimleikum í gær og ákvað að skjótast á hjólinu og leyfa henni að sitja aftan á. Ég held að þetta sé nú reyndar ekki leyfilegt skv. umferðarlögum en við förum okkur hægt og henni finnst þetta rosalega mikið sport. Nú er hugur í mér að fara að græja ljós og nýtt stýri á hjólið en það stendur bara ekkert alltof vel hjá mér peningalega séð.
Afmæliskaffi í morgun. |
Í dag er afmælið hans Brynleifs og er hann víst orðinn 11 ára kappinn sá. Af þessu tilefni vaknaði ég klukkan 06:15 og græjaði amerískar pönnukökur með ferskum berjum og beikoni. Þetta er orðin hefð hjá okkur á svona stórhátíðisdögum. Guðrún og Lukka kíktu að sjálfsögðu yfir og við fjölskyldan áttum notalega stund saman áður en við héldum til vinnu og skóla. Svo ætlum við öll út að borða í kvöld með stóru bræðrum, Ollu og Emilíu (afabarni).
Það er fínn gangur hjá mér í ræktinni. |
Ég fór í þriðja tímann minn í ræktinni í gær og það var komið að því að taka bekkpressu, eitthvað sem ég var búinn að óttast frekar mikið útaf plötunni á viðbeininu. En það gekk bara vonum framar og ég vann mig upp í 50 kg í rólegheitunum en lét þar við sitja. Er með seiðing af strengjum í dag en minna en ég bjóst við þar sem ég var frekar þreyttur eftir æfinguna.
Ég er búinn að vera með kvefskít í mér og var frekar slæmur í vinnunni í dag- stíflaður, með sviða í nefi og hálsi og hausverk. En um leið og ég kom út af skrifstofunni fór mér að líða betur. Ég er sannarlega með smá kvef en þurra loftið á skrifstofunni hefur sennilega gert þetta enn verra. Við erum búin að vera í vandræðum með loftgæðin og margir fundið fyrir einkennum, jafnvel farið að vinna heima. Loftgæðamælingar hafa samt ekki leitt neitt óeðlilegt í ljós og nú beinast öll spjót af rakastiginu sem hríðfellur þegar það kólnar úti (þetta var betra í sumar). Þetta er frekar pirrandi og vonandi komumst við fyrir þetta.
En víst ég hresstist svona þegar ég kom heim þá ákvað ég að taka smá brekkuspretti. Ég fann mér brekku hérna rétt hjá hljóp hana 6x á 4 min/km. Þetta er byrjunin á því að skoða hvort lappirnar þoli að taka 5 km keppnishlaup á sæmilegu tempói. Þetta gekk vel framan af en svo fór ég að fá sting í vinstra hnéið þegar ég var að klára. En það er bara að halda áfram að prufa og næst þegar ég tek svona effort ætla ég að skokka rólega 1 km, fara upp í ca. 4:30 min/km í 2 km og skokka aftur rólega 1 km. Ég á líka stuðningsband með siliconpúða til að setja undir hnéið. Alveg þess virði að prufa það.
Á morgun verður rækt hjá mér en ég held ég muni ekki hafa tíma til að hlaupa.
Ummæli