Massafín vika
Ég og Harpa á Árshátíð Akureyrarbæjar. |
Ég og Harpa skelltum okkur á árshátíð Akureyrarbæjar í gærkvöldi og áttum ljómandi fína kvöldstund. Risafylleríssamkomur eru reyndar ekki í miklu uppháhaldi hjá mér en ég vildi endilega fara með Hörpu og hitta vinnufélagana hennar. Við skelltum okkur í fyrirpartý og svo var fínn matur og dúndrandi tónlist frameftir kvöldi. Ég fór langt út fyrir þægindarammann og skellti mér í dýragarðinn fyrir framan sviðið og dansaði. Mér líður alltaf eins og fiski á þurru landi í svona aðstæðum en það er s.s. enginn að horfa á mann og enginn man neitt daginn eftir.
Vikan mín á Training Peaks. |
Ég skellti mér út áðan og lokaði æfingavikunni með einu hlaupi sem verður að teljast langt fyrir mig á þessum tímapunkti. Það var mikið slabb og blautur snjór og þetta var býsna þungt. Ég var frekar stirður til að byrja með en datt svo í gang eftir 1-2 km og var býsna góður þangað til á 6. kílómeter. Þá var ég farinn að lýjast aðeins en hefði s.s. alveg getað hjassast 2 km. í viðbót.
Sem fyrr klóra ég mér í skallanum yfir TSS skorinu og þarf endilega að finna út hvað ég er að gera vitlaust í skráningu á hjártsláttar- og hraðasónum. Þessi vika var ekkert sértaklega erfið þannig lagað og hvíldarpúlsinn hefur verið fyrir neðan það sem hann er þegar ég er að hjóla eitthvað af viti (sem er ágætis vísbending um að álagið sé ekki of mikið). Vika upp á 636 TSS er t.d. alveg massíf ef maður er bara að hjóla.
Síðustu 3 vikur hef ég verið að bæta hægt og rólega við kílómetratöluna í hlaupunum og spurning hvort ég ætti ég að skrúfa aðeins niður í næstu viku þar sem ég er að fara að keppa 26. október (miðvikudagur). Ég hugsa að ég taki eitt tempóhlaup og svo eitt lengra og rólegt. Mánudaginn 24. okt tek ég smá spretti og hvíli svo alveg daginn fyrir hlaup. Stefni að 3-4 æfingum í ræktinni.
Ég hef verið að þyngjast frekar hratt núna og held að lyftingarnar eigi stóran þátt í því en ég hef líka verið að éta óþarflega mikið. Ég ætla skrúfa niður kolvetnin í næstu viku og taka af mér 1-2 kg. fyrir hlaupið. Það munur ekkert smá mikið um það.
Ummæli