Kaffi, ráðstefna ofl

Það er óhætt að segja að það hafi verið frekar þungar lappirnar á manni í dag.

Dagurinn var býsna annasamur eins og stundum áður. Vinna, koma Dagbjörtu í fimleika, versla í matinn, koma Brynleifi í körfu, sækja Dagbjörtu, taka æfingu, fara í bað, elda og ganga frá. Klukkan er að verða níu og ég rétt að setjast niður núna, sæll og glaður. Það er gott að hafa í nógu að snúast, þá líður manni vel.

Ég tók fyrstu inniæfinguna á hjólinu í langan tíma og það væri synd að segja að ég hafi saknað þess. Þessi klukkutími var lengi að líða og lappirnar þreyttar þó ég hafi bara verið að malla á á 145W og púlsinn yfirleitt bara í 120. Ég ætla að skella mér  í ræktina í fyrramálið og svo út að hlaupa á sunnudaginn.

Æfingar síðustu vikna.

Ég er búinn að vera býsna duglegur í æfingum upp á síðkastið þó ég sé ekki að rúlla eftir neinu plani. Það er líka áhugavert að ég er samt að taka helmingi færri klukkutíma á viku miðað við það sem gerist þegar ég er að hjóla markvisst. Það er gott og blessað en ég verð aðeins að passa betur upp á matinn því ég er ekki að brenna eins miklu.

Ég hef verið í átaki við að skrúfa niður kaffidrykkjuna. Ég hef verið mjög harður við mig í vinnunni en gert smá undantekningar þess utan, sér í lagi ef það er eitthvað tilefni. En ég ætla bara að vera ánægður með það og mér reiknast til að haldi ég áfram að stramma mig af bara í vinnunni, þá minnki ég kaffidrykkjuna um rúmlega 1000 bolla á ári. Það er eiginlega bara súrrealískt.

Ég er að spá í að skella mér til Karlstad í Svíþjóð í febrúar til að sitja The International Winter Cycling Conference. Ég er búinn að henda inn umsókn í starfsmenntarsjóð BHM en veit s.s. ekki hvort þeir styrki mig til fararinnar þar sem þetta tengist ekki beint mínu sérsviði. Segji þeir nei, þá er ég samt að velta fyrir mér að reyna að sækja einhverja aðra styrki eða fjármagna þetta með öðrum hætti.

Í þessu sambandi er ég með eina tryllta hugmynd og hún er að taka með mér ferðahjólið og hjóla frá Arlanda og á ráðstefnuna í gegnum Västerås. Þá gæti ég gert vikuferð úr þessu og hitt Þolla í leiðinni. Ég á ennþá inni mikið sumarfrí og það væri gott að komast aðeins í burtu, jafnvel þó þetta sé ekki nein sólarlandaferð.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap