Hlaup, stress og svo slökunarhelgi.

Brynleifur að fara einn í fyrsta skiptið í keppnisferð🥹 Vakur sonur Hörpu Barkar sem var með honum í leikskóla í Mývatnssveit í gamla daga er til vinstri á myndinni.

Það er s.s. ekki mikið að frétta af mér. Vikan endaði í hálfgerðu rugli í vinnunni en við náðum samt að ganga þannig frá málum að maður gat farið nokkuð rólegur inn í helgina. En það var í nógu að snúast í gær og fyrradag. Utan við vinnu var ég að taka Brynleif til fyrir keppnisferð með Þór í körfunni, kaupa búning og láta merkja, koma Dabjörtu í fimleika og tónlist, fara í sund og svo vinna aukavinna þegar þau fóru að sofa. Ég var alveg búinn á því í gær en náði að hvíla mig ágætlega í nótt.

Skellti mér út að hlaupa í gær og það gekk s.s. ágætlega. Ég var svolítið þungur til að byrja með en svo datt ég hressilega í gang, gaf aðeins í og ákvað að lengja aðeins frá því síðast. Það gekk mjög vel til þar til ég var að nálgast 3 km, þá fékk ég smá pirring í hnéin og lét gott heita. Þetta voru því rétt rúmir 3 km á 5:32/km og púls rétt undir 130 og ég finn ekkert til í fótunum í dag. Það er mígandi rigning núna og ég er að spá í að hvíla bara í dag og reyna að ná svo  30-40 mín á morgun og fara þá hægar yfir til að passa álagið.

Á leið upp á Vaðlaheiði.

Ég sendi póst áðan á tengilið sem ég er með hjá Surly Bikes til að fá ráðleggingar með nýtt stýri á Pugginn. Ég hef aldrei verið hrifinn af stýrinu sem var á því þegar ég fékk það og mig langar að kaupa mér hefðbundið fjallahjólstýri. Og svo ætla ég að skoða einhverjar lausnir varðandi ljós fyrir veturinn. Helst vil ég finna eitthvað sem ég þarf ekki alltaf að vera að hlaða, einhverja dynamo útfærslu. En það gæti aftur á móti orðið höfuðverkur fyrir svona jeppadekk. Önnur útfærsla, sem ég hallast fremur að, er að kaupa gæða led-ljós frá SON í Þýskalandi að framan og aftan og vera svo með endurhlaðanlegt 6v batterý í töskunni í stellinu. Þá get ég alltaf stungið því samband niðri í geymslu til að hlaða. Ef ég tek nördismann í botn þá get ég útbúið rofa á stýrið til að kveikja.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap