Föstudagspistill

Er búinn að vera að garfa í gömlum myndum til að koma mér í stuð fyrir skipulagningu á næstu fjallaferð. Þessi er þegar ég kom í Laugafell frá Nýjadal í byrjun ágúst 2021.

Hef s.s. ekki frá mörgu að segja en finnst ég verði að kvitta fyrir helgina. Tók börnin aftur í gær þar sem mamma þeirra skrapp til Reykjavíkur og lífið snérist um það. Tók mér frí frá átökum og við Dagbjört skelltum okkur í sund. Brynleifur fór svo á körfuboltaæfingu og við Dagbjört elduðum kjúklingavængi og buðum Halldóru í mat. Það var allt mjög ljúft.

Vaknaði klukkan 06:15 í morgun og joggaði stuttan hring hérna í hverfinu. Var stirður í fótum og frekar þungur á mér. Lyftingaæfingin á miðvikudaginn situr í mér. Ég keypti mér kort í TFW í gærkvöldi og pantaði mér svo tíma kl. 16:30 í dag. Held að það sé hnébeygja og ég verð að fara varlega út af hnjánum.

Annars bara rólegheit um helgina. Lotto stefnir í 50 milljónir um helgina og ég er að spá í að vinna þann stóra. Ég er ekki búinn að vinna ca. 1000 x í röð og mér finnst það ömurlegt. Síðustu mánuði er mér búið að líða eins og það sé mitt hlutskipti í lífinu að vinna stóra vinninginn og mér finnst að ég eigi það skilið. Ég er margoft búinn að fara í gegnum það í hausnum þegar ég hringi í bankann til að ganga frá mínum málum og þakka fyrir viðskiptin. Síðan hringi ég í Halla frænda og spyr hvort hann vilji taka íbúðina mína í gegn og fer að skoða hvaða innréttingar og gólfefni ég vil. Síðan fer ég á netið og panta 2 vikna ferð til Kanarí eftir jólin. Ég bið nú ekki um meira.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap