Ferðahjólið líka komið á nagla
Það var ekki átakalaust að koma ferðahjólinu á nagla. |
Ég var orðinn þreyttur á að hjóla á Puggnum á auðum stígunum en það er samt búin að vera svo mikil ísing að það er ekki neitt vit að vera naglalaus. Ég dreif mig því í að setja naglana undir ferðahjólið eftir vinnu. Þessar felgur eru alltaf svolítið erfiðar og þessi Schwalbe nagladekk eins og grjót. Ég hugsa að ég hafi verið hátt í klukkutíma að koma þessu upp á-og var orðinn sár í puttunum af þessu brasi. En þetta kom að lokum.
Eftir það hjólaði ég í Bónus og keypti prótein og einhverjar fleiri vörur sem ekkert vit er í að versla í Nettó. Ég ætlaði líka í sund í leiðinni en það var skotvopnanámskeið í gangi og ég þorði ekki að vera úr símasambandi. Eftir það fór ég heim og fékk mér kjöt í karrý. Síðan er ég bara búinn að vera að lufsast og ganga frá þvotti.
Ég tók 11 hlaup á síðustu vikum og hef verið að lengja hægt og rólega. |
Ég var helvíti stirður í fótunum fyrripartinn í dag en held ég hafi haft gott af því að labba í vinnuna. Og svo fannst mér ég mýkjast aðeins upp við að hjóla seinnipartinn. Það er þung réttstaða og hnébeygja í ræktinni á morgun og ég er að hugsa um að láta mig bara hafa það. Síðan stilli ég æfingum fram að hlaupi upp eftir því hvernig mér líður.
Það er kannski óþarflega snemmt að fara að rýna í veðurspár fyrir næsta miðvikudag en skv. Veðurstofunni er allavega ekki mikil úrkoma í kortunum. Ég er kominn með nagla undir hlaupaskóna í hendur en ætla að bíða aðeins með að setja þá undir. Þegar þeir eru komnir undir hugsa ég að ég kaupi mér Brooks Hyperion Tempo skó og leyfi gömlu Brooks Ghost að taka við sem vetrarskóm.
Ég veit svo ekki hvað ég geri með hlaupin eftir næstu viku en þetta er fjórða vikan sem ég er ekki að hjóla neitt af viti. Ég hugsa að ég taki nóvember og desember í bland af hlaupum, hjóli og rækt og byrji svo base season í janúar.
Ummæli