|
Ég borða minna af mjólkurvörum miðað við það sem áður var, en þær eru ekki á bannlista. |
Stundum koma upp mýtur í ákveðnum kreðsum íþrótta og líkamsræktar sem tengjast matvælum. Á tímabili var annar hver crossfit-ari á keto, kolvetni hafa verið sögð eitruð og einhverntíman óttaðist maður ekkert meira en að drekka nýmjólk því hún væri svo feit. En oft þegar maður fer að kafa ofan í þetta sér maður fljótt að það er lítið á bakvið þetta og það þarf að skoða þetta í stærra samhengi.
Eitt af því sem maður heyrir oft þessa dagana er að mjólkurvörur séu bara fyrir kálfa og ungabörn. Þær séu bólgumyndandi og dragi úr getu íþróttamanna, sértaklega í þolíþróttum. Um daginn hlustaði ég á podcast með heimsklassa þjálfara sem var að fjalla um næringu og ein af hans gullnu reglum var að sleppa alfarið mjólkurvörum. Hann klikkaði út með að segja "nefnið mér einn góðan atvinnumann í hjólreiðum sem borðar mjólkurvörur". Ég er nú reyndar nokkuð viss um að það hljóti að vera hægt, auðveldlega.
Það er nokkuð langt síðan ég fór fyrst að skoða þetta en þar sem ég hef takmarkaðan tíma hef ég s.s. ekki þaullesið vísindagreinar um þetta. En fyrir nokkrum mánuðum fann ég samt risastóra samanburðarrannsókn þar sem niðurstöðurnar voru að mjólkurvörur gætu alveg haft einhver neikvæð áhrif á ákveðna lífeðlisfræðilega þætti og efnaskipti, en þegar allt væri tekið saman, þá væru jákvæð áhrifa sennilega meiri.
Höfum samt í huga að mjólkurvörur eru mjög mismunandi og það skiptir máli hvernig þær eru framleiddar. Gerilsneydd mjólk úr penicillin-sprautuðum og lyfjaétandi soya-beljum í USA er að öllum líkindum verra en það sem við getum keypt hér á landi- ennþá. Svo er munur á milli mismunandi mjólkurvara og það skiptir máli í hvaða magni þeirra er neytt.
Eitt sem ég tek eftir er að ef maður gúgglar þetta í stað þess að nota gagnagrunna fyrir vísindagreinar, þá skiptist þetta nokkurveginn í 2 fylkingar. Mikið af vegan-miðlum tala gegn mjólkurvörum en mjólkuriðnaðurinn heldur svo úti síðum sem eru duglegar að draga fram rannsóknir sem sýna fram á að mjólk sé holl og góð, alveg eins og við erum alin upp við.
Í morgun gúgglaði ég "dairy + sport performance" og niðurstöðurnar voru svo misvísandi að ég var engu nær. Þar fann ég t.d. mjög ítarlega grein um neikvæð áhrif mjólkurneyslu á íþróttafólk. Síðan var flott uppsett og traustvekjandi, en þegar ég fór að skoða betur sá ég að þetta var einhver pro vegan síða.
Ég hélt áfram að gúggla og svo opnaði ég Science Direct og gerði smá leit af alvöru rannsóknum. Ég tek það fram að ég hef bara verið að lesa í gegnum abstract-inn á greinunum en ég finn aldrei neitt sem segir að neysla á mjólkurvörum eigi að vera eitthvað sértaklega slæm.
Að lokum fór ég að leita undir "dairy + inflammation" og þá datt ég inn á síðu giktarsamtakanna í Bandaríkjunum og fann áhugaverða málsgrein þar sem er vitnað í samanburðarrannsóknina sem ég var áður búinn að lesa frá 2017.
Despite conflicting information, overall, research paints a positive picture for milk-based products. A 2017 review of 52 clinical studies, published in Critical Reviews in Food Science and Nutrition, concluded that dairy generally has anti-inflammatory effects, except in people allergic to cow’s milk. Still, the authors of that review noted there’s surprisingly little known about what components of dairy products might be helpful versus harmful. Milk-based products contain all sorts of nutrients and active compounds, including calcium, vitamin D and a variety of fats and proteins. And the proportions of those nutrients vary from food to food.
Sem sagt, það er ekkert sérstakt sem bendir til þess, svo lengi sem maður er ekki með óþol fyrir mjólkurvörum, að maður eigi ekki að neyta þeirra. Það er því sennilega með þetta eins og annað, allt er best í hófi. Hinsvegar eru mjög góð rök fyrir því að sleppa mjólkurvörum út frá dýravelferðar- og umhverfissjónarmiðum, það er allt annað mál. Ég held að þeir sem vilja tala fyrir veganisma ættu frekar að fókusera á þá þætti, því fyrir hinu eru bara einfaldlega ekki nægilega góð rök.
Ég sjálfur borða orðið mun minna af mjólkurvörum en ég gerði og nota t.d. alltaf haframjólk í búst og próteindrykki og oft út á múslí og morgunmat. En ég gæti aldrei sleppt ostum, smjöri og rjóma; þetta er bara beisikk stöff í alla matargerð. Og ég borða oft kotasælu með eplum og músli og gríp líka stundum dós af grískri jógúrt ef ég hef lítinn tíma. En maður er hættur gengdarlausu skyráti og það er orðið afar sjaldgæft að ég drekki mjólk með mat. Það er bara spari.
Að lokum, ef ég er bara að tala einhverja steypu eða hefur yfirsést eitthvað stórkostlegt, þá megið þið alveg benda mér á eitthvað sem sýnir hið gagnstæða.
Ummæli