Brompton folding bike
Mynd www.brompton.com |
Það er til formúla fyrir hversu mörg hjól maður þarf að eiga og hún er einfaldlega:
n+1
þar sem n er sá fjöldi hjóla sem þú átt plús 1. Það vantar alltaf eitt hjól í viðbót. Nú á ég 4 hjól sem uppfylla mest allt það sem ég þarf og langar til að gera á hjólum; ferðahjól fyrir malbik og utanvegar sem ég nota líka til að koma mér á milli staða innanbæjar og svo götuhjólin. Mig langar alveg til að skoða að fá mér malarhjól en það er ekki að fara að gerast næsta árið.
Lítur furðulega út en það ku vera fjandi fínt að hjóla á þeim. |
Það sem ég myndi trúlega skoða áður en ég færi að kaupa mér malarhjól er að fá mér Brompton folding bike. Þetta hjól er verkfrkæðilegt meistaraverk sem maður getur nánast sett í vasann.... eða þannig. Það er ekkert mál að setja þetta í ferðatöskuna eða innrita inn sem tösku. Það er hægt að brjóta það saman á 10-20 sekúndum og kippa með í strætó eða setja í skottið á bílnum. Það er hægt að kippa þessu með í flug til Reykjavíkur og sleppa því að taka bílaleigubíl. Eða taka það með á vinnufundi erlendis eða í borgarferð. Þetta er mjög ofarlega á listanum sem +1 hjá mér.
Annars er mánudagur og ég var búinn að taka mér frí vegna starfsdags í skólanum. Svo æxluðust hlutirnir þannig að Guðrún er með krakkana í Skagafirði eitthvað fram eftir degi en ég ákvað að vera bara í fríi. Brynleifur á afmæli á morgun og ég þarf að þrífa kofann og undirbúa það. Síðan ætla ég að henda mér í ræktina í hádeginu.
Í gær henti ég mér út að hlaupa í óveðrinu og það var drullu fínt. Veðrið náði aldrei þeim hæðum hérna sem spáð var. Ég hljóp 6 km rólega og leið ágætlega. Síðasti kílómeterinn á móti vindinum var reyndar nokkuð krefjandi. Fyrsta vetrarhlaup UFA er 26. október og ég stefni að því að vera með. Þetta er ekki langur fyrirvari en ég ætla að gera mitt besta.
Ummæli