Uppgjör úr bike-fit
Hjólið uppsett í Retül Fit græjunum. |
Siggi tók á móti okkur í bílskúrnum sínum og það var bara allt frekar chillað og huggulegt. Hann bauð upp á kaffi og var almennt hress. Veit ekki hvort hann sé allra, en við smullum alveg saman og ég hafði mjög gaman af honum. Við duttum strax í nördaspjall, hlustum á sömu podköstin og höfum gaman að því að kafa í hlutina.
Fyrsta mál á dagskrá var líkamsmat. Það er skemmst frá því að segja að ég kom mjög vel út úr því með fínan styrk og ágætis hreyfanleika.
Næst setti hann skynjara á fætur, skó, mjaðmir etc. á vinstri hliðina og lét mig hjóla. Út frá þeim tölum fór hann svo að breyta hnakknum (var allt of lár) og hann komst líka að því að ég þyrfti styttri stamma á stýrið (færa stýrið nær). Hann færði einnig bremsu/skiptingar- höldin (levers), setti fleiga undir klítana mína og á endanum skiptum við út hnakknum líka. Að lokum lét hann mig kaupa innanfótarstyrkt innlegg.
Ferillinn yfir hvernig hnéin á mér hreyfast þegar ég hjóla. |
Það kom í ljós að það er frekar mikið ósamræmi á milli hvernig ég hjóla með vinstri og hægri hliðinni. Munurinn er aðalega neðst í pedalsnúningnum og skiptir í raun ekki svo miklu máli þannig lagað. Það gerði það hinsvegar að verkum að hann átti erfiðara með að gera breytingar nema að þær færu að hafa of mikil áhrif á hinni hliðinni. Við náðum að greina vandamálið niður í vinstri mjöðm og ökkla og gaf hann mér æfingar til að liðka mjaðmir og virkja betur vöðva og hreifanleika í og fyrir neðan ökkla.
Það sem ég var ánægður með var að staðan á efri parti var alveg spot on, hnéin eins og rakvélablöð (svo ég noti hans orð) og ég hreyfðist ekki í hnakknum. Hann sagði að ég færi mjög vel inn í pedalhringinn (klukkan 11) en þegar ég kem niður í botn vinstramegin þá er ég of flatur.
Svo kom í ljós að ég á ekki að vera á 172,5 mm sveifum heldur 168 mm (90% af fólki er með of langar sveifar). Gallinn við það er að ég er með vattamæla í sveifunum og það myndi kosta mig fúlgur fjár að skipta þeim út. Þess vegna reyndum við að vinna í kringum það vandamál með öðrum breytingum.
En var þetta peninganna virði? Ég er kominn með hjól sem er uppsett fyrir mig (inni og útihjólið) og ég veit nákvæmlega allar mælingar. Næst þegar ég kaupi hjól get ég pantað réttar sveifar og rétta lengd af stamma. Ef ég fer til útlanda og leigi mér hjól þá á ég allar þessar tölur og get tekið með mér hnakkinn minn (ef ég fíla hann) og látið stilla upp hjóli alveg fyrir mig. Mælingar auka líkurnar á því að ég sé að ná að setja hámarksafl í pedalana og minnkar líkurnar á að ég fái álagsmeiðsli þegar ég hjóla mjög mikið.
Áðan fór ég og tók fyrsta túrinn eftir breytingar og ég fann alveg mun. Stærsti munurinn er hæðin á hnakknum og innleggin í skónum. sem gefa miklu meiri stöðuleika En ég varð fyrir vonbrigðum með hnakkinn og er ekki viss um að hann sé neitt betri en sá sem var. Ég s.s. dofnaði aðeins í félaganum og þarf að vanda mig við að sitja á setbeinunum. En nota bene, ég á ennþá eftir fá mér styttri stamma sem gæti breytt einhverju.
Að lokum þá varð ég fyrir miklum vonbrigðum með að mælingar hafi ekki gefið til kynna að ég gæti slammað stýrinu aðeins neðar, því hjólið væri svo ógeðslega flott þannig. En ætli þægindi og virkni verði ekki að fá að vera í forgangi.
Ummæli