Reykjavík, fjallið ofl.

PR upp í skíðahótel.

Sit hérna á Brikk í Hafnafirði og var að klára einhver mál í vinnunni. Ætlaði að vera alveg í fríi í dag en það kom upp einhver steypa sem ég þurfti að leysa. Harpa er í bike-fit og ég fer svo klukkan 13:00. Ég er orðinn helvíti spenntur en vona jafnframt að þetta muni ekki kosta of miklar breytingar á hjólunum, svona peningana vegna.

Þegar við klárum bike-fittið ætlum við að henda okkur í sturtu og svo kíkja eitthvað út að borða og kannski í bíó. Förum svo í búðir í fyrramálið og brunum norður aftur. Erum að vona að veðrið verði sæmilegt á sunnudaginn svo maður nái einum hjólatúr fyrir lok vikunar. Í næstu viku þarf ég að vera í Reykjavík í 2 daga og er líka með börnin. Hjólið situr því á hakanum þá vikuna.

Fórum á Mathöll Höfða í gær og átum kjúklingaborgara á Gastro Truck. Þeir eru alltaf góðir.

Ég var að hlusta á podcast í vikunni sem fjallaði um að bæta besta tímann sinn í klifri. Þar var verið að tala um að maður ætti að spara sig í bröttustu brekkunum og reyna að eiga meira inni þar sem hallinn er ekki eins mikill því þar nær maður mun meiri hraða. Þetta meikar svo mikinn sens þegar maður fer að spá í þetta og ég hafði alltaf verið í botni upp mesta hallann.

Strava yfir PR frá 7. sept.

Í fyrradag ákvað ég að fara upp í skíðahótel og prufa þetta. Ég ákvað að fara samt ekki alveg "all out" en tók vel á því. Reyndi að hemja mig upp að Hálöndum og í brekkunni upp að rimlahliðinu. Þegar ég kom þar upp fyrir reyndi ég svo að halda jöfnum hraða sitjandi í hnakknum en stóð upp og gaf vel í í síðustu beygjunni. 

Og viti menn, ég náði að koma mér undir 17 mínútur á kaflanum sem ég er alltaf að miða við (frá bílasvæðinu og upp). Ég er reyndar ennþá nokkuð langt frá markmiðinu mínu fyrir sumarið en átti s.s. alveg eitthvað inni ennþá.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap