Bike-fit og aftur til Rvk
Hjá Bikefit Sigga. |
Það er allt búið að vera á hvolfi hjá mér síðustu daga og ég hef því ekki tíma til að fara í in depth útlistingar á hvernig gekk hjá okkur í bike-fittinu hjá Sigga. Það á líka eftir að koma í ljós þegar maður fer að hjóla lengri vegalengdir hvort maður finnur mun á hnakknum ofl.
Núna er ég kominn aftur til Reykjavíkur og verð hérna í tvo daga en vona að ég get farið yfir þetta betur þegar ég kem norður aftur.
Ég ætlaði að prufa hjólið í gær en það var svo leiðinlegt veður að ég hjólaði bara aðeins inni. Stillti á intensífa æfingu og kláraði hana ekki. Hef sennilega bara verið eitthvað eftir mig eftir ferðina suður.
Ummæli