Tour de Pabbi

Tour de France gaurinn hans Brynleifs.

"Pabbi, hvenær ætlar þú að keppa í Tour de France?" Ég reyndi að útskýra fyrir drengnum að það gæti ég aldrei gert. "En pabbi, aldrei að segja aldrei, maður getur gert allt ef maður hefur trú á sér." Eftir nánari útskýringar um aldur, skuldbindingar, genapælingar ofl lauk hann þessu á því að segja "Pabbi, ég hef trú á þér". Börn eru yndisleg og sjá heiminn með svo skemmtilega einföldum augum. Og svo er maður að sjálfsögðu lang flottastur, stjarna og fyrirmynd, maður gleymir því stundum. Það er ágætt að hafa það í huga og með réttri breytni kemur maður á legg góðum og heilbrigðum einstaklingum.

Þegar ég hjólaði af stað í vinnuna í morgun voru lappirnar á mér virkilega þungar. Það tók mig líka óvenjulangan tíma að drullast fram úr bælinu. Ég held að þetta hafi verið stressið í vinnunni og svo át ég núðlur í kvöldmatinn í gær. Með aldrinum, og með því að pæla meira í því hvernig mér líður eftir að hafa borðað ákveðin matvæli (núðlur flokkast reyndar varla sem matvæli) þá er ég farinn að komast að því að sumt á ég helst ekki að borða. Núðlur eru eitt af því en mér finnst þær samt alltaf góðar.

Þrátt fyrir þreytu í morgun þá ákvað ég að skella mér út að hjóla eftir vinnu. Við Harpa tókum einn Eyjafjarðarhring og ég var s.s. alveg ágætur. En núna finn ég þreytuna síga inn og veit að það er kominn tími á hvíld. Bætingarnar koma á frídögunum. Þetta er stundum kallað "progressive overload" og functional over-reaching (nonfunctional over-reaching er að gera of mikið og fara í ofþjálfun). Maður þarf að hlaða upp miklu álagi í sístækkandi blokkum þar til líkaminn er kominn á brúnina, bakka svo og hvíla á réttum tíma- þegar maður kemur til baka er maður svo sterkari. Næst þarf maður svo að gera örlítið meira, annars venst líkaminn bara sama álagi og það verður engin bæting.

Þetta og "stóra myndin" er það sem skiptir mestu máli. Tölum um hana síðar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap