Reykjavík
Það er fundur hjá mér í Reykjavík á morgun og ég átti flug í fyrramálið klukkan 08:10. Icelandair frestaði því flugi um 3 tíma og setti öll plön í vaskinn. Daggóður tími fór í að reyna að breyta fluginu og ég gerði því ekkert af viti eftir klukkan 14 í dag. Endaði með að ná að koma mér í vél klukkan 20:30 í kvöld, þurfti að redda mér gistingu og þurfti að taka leigubíl þar sem bílaleigubílinn er ekki reddý fyrr en í fyrramálið. Þarf svo að byrja vinnudaginn á því að fara út á völl með leigubíl að sækja hann. Þetta er gömul saga og ný og þessi flugvandamál eru búin að kosta mig ógeðslega mikinn tíma í vinnunni og stofnunina alveg helling af peningum.
Við Harpa fórum í samhjól í morgun og veðrið var mjög gott. Við ákváðum að hafa þetta rólegt og fylgdum hópnum fram á Grund en snérum við þar. Þetta var bara ekta rólegt endurance og einhverjir 43 km. Ég er búinn að ákveða að hætta snemma í vinnu á þriðjudaginn og nota góða veðrið. Ég ætla að hjóla yfir Víkurskarð, til baka og fara upp í skíðahótel. Það gera ca. 1500 metra í hækkun og er fín æfing. Mig langaði að fara eitthvað lengra en það er mikið að gera í vinnunni og Dagbjört Lóa búin í frístund klukkan 15:00. En ég hlakka til.
Ég er eiginlega feginn að vera fyrir sunnan á morgun því spáin er svo góð að það hefði verið erfitt að sleppa því að fara út að hjóla. Þrátt fyrir 4 daga í röð og 250 km þá líður mér super vel en held að það sé skynsamlegt að taka hvíldarlag. Svo má dæma um það hvort fundardagur í Reykjavík með tilheyrandi ferðalögum og stressi geti talist góð hvíld. En það er önnur saga.
Ummæli