Dagur #72 - útskrifaður!!!

Að skríða heim eftir Eyjafjarðarhring.

Ég fór og hitti Ómar bæklunarlækni í gær og það var sannarlega ánægjuleg heimsókn. Á röntgenmyndunum sést ekki einu sinni hvar brotið var og þetta telst fullgróið. Ég má í rauninni gera allt sem ég treysti mér til en þarf að sjálfsögðu að fara varlega af stað á meðan vöðvarnir í kringum brotið eru að jafna sig. Ég fæ náttúrulega verki við ákveðnar hreyfingar og ef það lagast ekki get ég farið í aðgerð eftir áramótin og látið taka plötuna. Það er seinna tíma vandamál. 

Til að fagna þessu tók ég nokkrar upphífingar þegar ég kom heim í gær og svo prufaði ég að taka armbeygjur. Upphífingar eru ekkert mál en ég þarf að fara varlega í armbeygjurnar. Ætli ég reyni ekki að biðja Helgu systur að gefa mér einhverjar góðar æfingar til að koma mér í gang.

Æfing gærdagsins var rólegur Eyjafarðarhringur með Hörpu. Veðrið var fínt fyrir hádegi í gær en svo kólnaði ábyggilega um 5 gráður og fór að blása hressilega. Við settum bara undir okkur hausinn og kláruðum þetta án þess að stoppa. 

Það verður brjálað að gera hjá mér í dag eftir vinnu. Þarf að fara með gamla hjólið til Halla í 66 Hjól, þrífa nýja hjólið og svo er allt á hvolfi hérna heima fyrir. Svo þarf ég að taka mig til fyrir ferðina austur (ég skráði mig að sjálfsögðu strax í Orminn eftir læknisheimsóknina). Síðan þarf ég að komast út og taka smá æfingu.

Það eru 27 búnir að skrá sig í 68 km í Orminum og vonandi á eftir að bætast einhver slatti við það. Ég sé á skráningunni að það eru allavega komnir 3-5 helvíti öflugir og býsna öruggt hver á eftir að vinna. En planið hjá mér er bara það sama og í fyrr; reyna að hanga í fremstu mönnum eins lengi og ég get og gera mitt besta. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap