Blautur laugardagur
Það var gott að fá þessi heim eftir 3 vikna fjarveru. |
Það er ekki spennandi veðrið í dag og í gær var ég eiginlega búinn að ákveða að sleppa öllu hjóleríi í dag. Þegar fór að líða á morguninn fór ég þó að horfa upp í fjall og velta fyrir mér hvort ég ætti að reyna að ná besta tímanum mínum þangað uppeftir. Það er ekki alslæmt að vera með norðanáttina í bakið megnið af leiðinni. Á móti kemur að ég hefði þurft að vera mikið klæddur og það rignir.
En ég náði að ýta þessum pælingum frá mér og ákvað að sinna frekar börnunum. Við fórum í búðina áðan og keyptum í matinn. Í fyrramálið ætla ég að gera amerískar pönnukökur, beikon og fersk ber. Hella upp á nóg af kaffi og fylgjast með Hafdísi og Siljunum hjóla á Evrópumótinu í götuhjólreiðum. Það er skemmtilegt að fylgjast með þessum flottu konum, sérstaklega þar sem maður þekkir þær og hjólar oft með þeim.
Næst á dagskrá hjá okkur börnunum er að hjóla í sund og svo ætlum við að kíkja til Áslaugar og Guðmundar í kaffi. Það er skömm af því hvað maður er lélegur að kíkja til þeirra. Eftir það hugsa ég að ég geri smá æfingar og svo ætla ég að leggjast með tærnar upp í loft og gera mest lítið.
Veðurspáin á morgun býður upp á útihjól og ég ætla að nýta mér það. Nú er engin keppni framundan og því er ég bara með það að markmiði að halda mér við þangað til ég byrja að undirbúa mig fyrir næsta tímabil. Því fylgir að setja sér markmið og leggja stóru línurnar. Ég er líka alltaf með það á bakvið eyrað að fá mér þjálfara en hef ekki áhuga á því að fá bara einhver sem skrifar út æfingar og er ekki með endurgjöf. Þetta þarf að vera dýpra en það.
Ummæli