Dagur #44
Á Björnöen með börnunum |
Það er óhætt að segja að við höfum það fínt í Västerås hjá Þolla. Veðrið hefur leikið við okkur það sem af er en nú er spáin reyndar ekkert sérstök. Dagurinn í dag á að vera fínn og ég ætla að skella mér með börnunum á Björnöen og athuga hvort við getum farið í zip-line og leigt okkur kanó. Við ætlum að grípa með nesti og vera þar þangað til Þolli er búinn að vinna.
Fyrsta kvöldið okkar hérna var alveg geggjað. Þá skelltum við okkur líka á Björnöen og sulluðum í heitu vatninu fram eftir kvöldi. Ég hljóp tæpa 6 km í skóginum og henti mér svo út í með börnunum. Blanka logn, 26°C hiti og lífið alveg dásamlegt. Ég gæti alveg vanist þessu. Hlaupið gekk ekki alveg nægilega vel þar sem ég stífnaði upp í hægri kálfanum. Ég veit ekki alveg hvað þetta er en sennilega gott að fara ekki langt næst. Ég er búinn að finna mér fína brekku hérna rétt hjá og ætla að skella mér í smá brekkuspretti á fjallahjólinu hans Þolla seinnipartinn.
Við ætluðum til Stokkhólms á morgun en lestarsamgöngurnar eru í steik út af viðgerðum á teinunum. Það myndi þýða lest + rúta og eitthvað vesen þannig ég hugsa að ég bara setji þau plön á hold. Börnin hafa hvort sem er miklu meira gaman af einhverjum ævintýrum á ströndinni. Jæja ég þarf að fara að koma okkur af stað......
d
Ummæli