Dagur #40 🇸🇪
Brynleifur fékk hjólaföt. |
Í gærmorgun skellti ég mér aftur út að hlaupa. Stefnan var að lengja aðeins en ég vissi s.s. ekki hvernig lappirnar myndu bregðast við þessu nýja áreiti. Ég var smá stirður þegar ég hljóp af stað og með smá strengi í nárunum. Ég komst fljótlega yfir þetta og endaði með því að hlaupa 5 km á 5:45/km (pace) sem ég held að sé þokkalega skynsamleg nálgun á þetta. Ég finn allavega lítið fyrir þessu í dag. Kannski við þetta að bæta, þá hef ég aðeins verið að dunda mér við að taka magaæfingar og öxlin er farin að þola það vel. Ef ég hleyp í dag þá geri ég það seinnipartinn og ætla bara að sjá til hvort ég verði nokkuð stirður.
Ég er bara þokkalega ánægður með æfingarnar upp á síðkastið og gott að missa þetta ekki í einhverja vitleysu þó maður sé í fríi. |
Batinn á öxlinni er helvíti góður. Ég get lyft hendinni upp fyrir haus án þess að finna mikið fyrir því og er duglegur að nota hana við lítið átak. Ég er með micro-pore límplástur yfir skurðinum til að verja hann frá sólinni og skipti um plástur í gær. Ég held að þetta líti bara þokkalega út. Ég hef í fullri alvöru verið að spá í hvort ég fái mér eitthað tattoo við eða í kringum skurðinn. Ég er með eina hugmynd á teikniborðinu en veit ekki hvort ég þori að láta vaða á það.
Ummæli