Dagur #31
Veðrið er gott, peningamál eru ágæt, börnin eru frísk og ég kominn í sumarfrí. Ég sæki börnin á morgun í Hóla og við fljúgum svo beint frá Akureyri á sunnudagsmorgun. Ég er eiginlega ekki neitt búinn að taka okkur til og ekki skipuleggja neitt í hvaða röð við gerum hvað í Kaupmannahöfn. Eigum við ekki bara að láta þetta flæða?
Ég er að fara að henda mér í bað og svo ætlum við Harpa út að borða á Greifanum. Tók eina 5x5 mínútna æfingu á 220W áðan og það gekk bara vel. Var orðinn ágætlega þreyttur í lokin en hefði getað tekið meira. Núna er bara að reyna að halda sér eitthvað gangandi þarna úti svo maður missi ekki allt niður. Ég er farinn að þyngjast aftur og er það besta mál þar sem ég var kominn undir 61 kg!!! Á morgun er 1,5 klst endurance æfing og svo frí frá hjólinu nema ég láti vaða á þrekhjólunum á hótelinu.
Ég reikna ekki með að blogga mikið á meðan ég er úti þar sem ég nenni ekki að taka með tölvu.... eða ég held ekki. Skoða þetta kannski aðeins. Einhverra hluta vegna er alltaf fín umferð hingað inn á bloggið hjá mér!!! Segið svo að bloggið sé dauður miðill. Og takk þið sem kíkið inn, mér finnst vænt um það.
Ef ekki heyrist mikið frá mér þá má reikna með að ég fari í fullan gang 18. júlí. Þá reikna ég með að byrja að hjóla úti og sumarið hefst vonandi officially þá.
Góðar stundir.
Ummæli