Super
Ég ætlaði nú að setja inn aðra mynd en hún var ekki búin að upload-ast. Þá set ég bara inn mynd af bollum, það er viðeigandi. |
Við lifum á áhugaverðum tímum. Eins og ég kom inn á í fyrri pósti þá á ég tæknilega séð að vera kominn með covid. Mér leið samt vel í gær og tók æfingu eins og vera bar. Það gekk super vel og ég var í fantaformi. Í gærkvöldi fór ég svo að finna aðeins til í hálsinum, ekki sársauka, heldur meira svona kitling. Í morgun var ég svo hálfringlaður og átti erfitt með að lesa af tölvuskjá. Og svo leið mér eins og það væri ekki nema 10°C hiti í íbúðinni þó ég væri kappklæddur og í náttslopp.
Klukkan 09:00 skellti ég mér aftur í sýnatöku niður í Strandgötu- og niðurstaðan var aftur neivkæð. Ég dreif mig því í vinnuna og það gekk nú svona að mestu vel. Ég var samt eitthvað pínu ringlaður og átti erfitt með að einbeita mér. Ég ákvað að færa æfingu dagsins í dag fram á morgundaginn þar sem ég þori ekki alveg strax að fara að taka of mikið á því. Ef ég verð neikvæður á heimaprófi í fyrramálið og líður vel þá tek ég æfinguna annað kvöld. Ég ætla svo að bóka aftur test á heilsugæslunni á fimmtudagsmorgun. Ef ég verð ekki með covid þá, þá get ég örugglega ekki fengið covid.
En til að flækja málin ennþá meira þá er Guðrún líka orðin veik og ég er í stökustu vandræðum hvað ég á að gera við börnin á meðan ég fer til Egilsstaða í vinnuferð á föstudaginn. Hún er reyndar ekki með covid þannig maður verður bara að bíða og sjá. Maður er búinn að komast að því að það er eiginlega enginn séns að skipuleggja nokkurn skapaðan hlut þessa dagana. Maður verður bara að taka einn dag í einu.
En annars er þetta búið að vera hálfgerður ofur-pabba dagur hjá mér í dag. Eftir vinnu fór ég og náði í Dagbjörtu og Brynleif og við skelltum okkur í búð og keyptum vistir og verkjatöflur fyrir Guðrúnu. Síðan fórum við niður í Aðalstræti með varninginn og náðum í dótið sem fylgir börnunum. Þaðan brunuðum við heim og ég henti baunum í pott. Þá skaust ég með Dagbjörtu til vinkonu og fundaði með 4 mömmum um öskudaginn. Þaðan fórum við Brynleifur á Glerártorg og við keyptum töfrasprota og hráefni í hummus. Næst fór ég með Brynleif til Árna svo þeir gætu æft öskudagslögin. Svo fór ég og náði í Dagbjörtu og við fórum heima að elda saltkjöt og baunir að ósk barnanna. Á meðan það mallaði gerði ég 2 tegundur af hummus og gekk frá. Síðan átum við, mátuðum búninga og skipulögðum morgundaginn. Ég þarf að vakna frekar snemma því ég þarf að koma á þau andlitsmálningu og koma þeim af stað út í öskudaginn áður en ég fer að vinna, þ.e. ef ég verð frískur ennþá. Ég er kominn með smá sviða í nasirnar og pirringurinn í hálsinum að aukast. Það kemur allt í ljós.
Ummæli