|
Táknær mynd fyrir mataræðið upp á síðkastið |
Nú tel ég mig vera búinn að ná mér að fullu af veirunni og vikan hefur byrjað mjög vel að flestu leiti. Börnin eru hjá mér og því hefur verið í nógu að snúast. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem maður hefur ekki sest niður fyrr en eftir klukkan átta. En mér finnst líka fínt að hafa þetta svona og leiðist ekki á meðan.
En annars er ég búinn að standa mig ljómandi vel í hollustunni eins og ég var búinn að lofa sjálfum mér. Og ég velti því hreinlega fyrir mér hvort það hafi ekki örugglega flýtt fyrir bata eftir veikindin. Ég finn ekki fyrir neinni þreytu og mér finnst ég vera orðinn jafn öflugur og ég var fyrir. Ofan á hollt mataræði hef ég líka verið að éta kalsíum, magnesíum, D-vítamín og lýsi fyrir svefninn.
Veðrið hérna hefur s.s. ekki verið neitt til að kvarta yfir en það fór að kólna aftur. Ég hef s.s. ekki hjólað mikið úti upp á síðkastið, bara þetta venjulega transport í og úr vinnu. Nú er hjarn yfir öllu og þegar ég fór í vinnuna í morgun hjólaði út af stígnum á leiðinni og stystu leið í gegnum skóginn við borgirnar fyrir ofan háskólann. Það er ótrúlega magnað hvað er hægt að druslast á svona fatbike þegar aðstæðurnar eru réttar. Það væri hrikalega gaman að fara með það austur og hjóla hringinn í kringum Belgjarfjall.
|
Power Profile sem tekið er úr Trainingpeaks. |
Ég hendi hérna inn að gamni Power Profile úr Traininpeaks sem sýnir hvar ég stend í samanburði við mismunandi getuflokka (allt að atvinnumönnum). Í USA skipta þeir þessu niður í svo kallaðar Cat grúppur þar sem Cat 5 er lakasti hópurinn og Cat 1 þeir bestu (að frátöldum atvinnumönnum). En til að skýra þetta betur þá sýnir grafið hvað ég hef mest haldið miklu afli í 60, 20, 5, 1 mínútu og svo í 5 sek (sprettur).
Síðan ég byrjaði að nota Trainingpeaks hef ég aðalega verið að lyfta og hjóla svokallað endurance (Zone 1 og 2) og því á þetta nú sennilega eftir breytast nokkuð á næstunni, sérstaklega þegar ég fer út að hjóla og ég tala nú ekki um að keppa. Ég hef t.d. ekkert verið að taka spretti eða einnar mínútu effort (lökustu súlurnar). Ég veit ekki hvort það sé raunhæft að ég verði með allar súlurnar í Cat 3 eftir sumarið, en ég stefni allavega að því að vera sem næst því.
En annars bendir þessi greining nú sennilega helst til þess að mér henti lengri vegalengdir og ég verði seint mjög explosive hjólari. En það kemur í ljós.
Ummæli