Vinna og fiskur
Fish and chips úr matarvagni á Óseyri. |
Nú er fyrsta vikan mín í starfi teymisstjóra hjá Umhverfisstofnun að baki og hún gekk bara vel. Það er í mörg horn að líta og maður sat sem límdur við tölvuna að græja allskonar hluti. Tíminn fauk hjá og manni líður bara óskaplega vel með þetta allt saman og nokkuð viss um að maður eigi eftir að standa sig ágætlega. Það er gott að fá aukna ábyrgð og þetta challenge gerir allt miklu skemmtilegra. Gott mál.
Ég og nafni minn Pálsson skelltum okkur í matarvagninn á Óseyri á þriðjudaginn og keyptum okkur fisk og franskar. Hann var alveg super góður og frábært viðbót við veitingahúsaflóru bæjarins. Þeir selja líka djúpsteiktan kjúkling sem ég ætla að prufa næst. Mæli með.
Ég er búinn að taka 2 lyftingaæfingar í vikunni og 2 hjólaæfingar. Síðan á ég eftir að taka 2 í viðbót. Ætla að gera upp vikuna hérna á sunnudaginn og tala aðeins um mataræði líka- það er ennþá svolítið jóló.
Ummæli